

Unnar Þór Sæmundsson frambjóðandi Pírata í komandi borgarstjórnarkosningum hvetur eindregið til þess að Reykjavíkurborg leggi Foreldrahúsi til nægilegt fé til að tryggja rekstur þess út þetta ár en fram hefur komið að frekari fjármagns frá ríkinu til rekstursins sé ekki að vænta. Unnar hefur lagt skriflega tillögu þessa efnis fyrir alla fulltrúa í velferðarrráði borgarinnar.
Fjallað hefur verið um málefni Foreldrahúss í fjölmiðlum en Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hefur sagt að Foreldrahús hafi sótt um meira fjármagn til ríkisins en það þurfi. Foreldrahús veiti snemmtæka þjónustu og hana eigi sveitarfélög að sjá um en ekki ríkið. Fram hefur komið að fái Foreldrahús ekki meira fé frá hinu opinbera verði því lokað um mánaðamótin.
Fram kemur í tillögu Unnars Þórs að til þess að halda rekstrinum gangandi út árið þurfi Foreldrahús 30 milljónir króna og leggur hann til að borgin útvegi það fjármagn.
Hann segir að Foreldrahús, sem starfrækt er við Suðurlandsbraut, sé sjálfseignarstofnun sem rekin sé af foreldrasamtökunum Vímulausri æsku og hafi starfað í fjóra áratugi. Starfsemin sé sú eina sinnar tegundar hér á landi sem veiti snemmtæka íhlutun fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda, þar á meðal vegna vímuefnaneyslu, og stuðning við fjölskyldur þeirra. Úrræðið þjóni fyrst og fremst reykvískum börnum og fjölskyldum þeirra og hafi verið mikilvægur hlekkur í forvarnar- og velferðarkerfi
borgarinnar en um 80 prósent skjólstæðinga úrræðisins séu íbúar Reykjavíkurborgar. Reykjavík hafi
veitt Foreldrahúsi 10 milljóna króna styrk ár hvert síðustu ár og sé þeim styrk ætlað að standa straum af kostnaði þeirra viðtala sem snúi að einstaklingum sem eigi lögheimili í Reykjavík. Tillagan sé óháð þeim samningi.
Unnar segir að árlega taki Foreldrahús á móti 1.500–1.800 foreldrum í ráðgjöf vegna vímuefnavanda barna og um 600 börn njóti aðstoðar á hverju ári. Um sé að ræða snemmtæka íhlutun sem foreldrar
geti nýtt sér þegar grunur leiki á að barn sé að leiðast út í vímuefnanotkun eða aðra áhættuhegðun. Viðtöl við einstaklinga sem eigi lögheimili í Reykjavík séu veitt án endurgjalds á grundvelli samnings við Reykjavíkurborg.
Færir Unnar ítarleg rök fyrir því að borginni beri að tryggja áframhaldandi starfsemi Forerdrahúss það sé ekkert annað sambærilegt úrræði í boði. Með framlaginu axli borgin lögbundna skyldu sína við að tryggja velferð barna í Reykjavík en Unnar segir um tillögu sína á Facebook:
„Það þýðir ekki bara að segjast hugsa um börnin og vilja taka utan um þau en láta svo svona hluti gerast. Börn með fíknivanda fá mikla athygli stjórnmálanna inn á milli en þegar á hólminn er komið þá týnir stjórnmálafólk kjarkinum og gerir ekkert.“