Kona í Texas fylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir að valda barni hættu. Eins árs gamall frændi hennar komst í veip pennann hennar sem innihélt kannabisefni.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Konan heitir Vianney Alyssa Acosta og er 22 ára gömul. Hún var handtekin á heimili sínu í borginni El Paso þann 16. maí síðastliðinn eftir að eins árs gamall frændi hennar lenti á spítala með eitrun.
Talið er að barnið hafi fundið veip pennann hennar, sem innihélt kannabis, á náttborðinu hennar á meðan hún var að passa hann. Talið er að hann hafi sogið pennann og innbyrt fíkniefnið.
Barnið átti erfitt með að anda og hringt var á neyðarlínuna. Þegar lögreglan kom á svæðið voru sjúkraflutningamenn komnir og voru að sinna barninu sem grét stöðugt. Barnið var þreytulegt til augnanna og vildi fara að sofa.
Faðir barnsins og amma voru einnig á heimilinu en móðirin var í vinnu. Voru þau öll að borða á meðan drengurinn saug veip pennann. Tóku þau eftir að eitthvað væri að þegar þau heyrðu hann hósta inni í svefnherberginu.
Acosta hefur verið ákærð fyrir vörslu fíkniefna og að stefna barni í voða. Hún gæti átt allt að 2 ára fangelsi yfir höfði sér. Mál barnsins hefur einnig verið opnað hjá barnaverndaryfirvöldum í El Paso.