

„Rán um hábjartan dag! Sonur minn var á leið úr landi og af því hann átti dollara en var á leið á evrusvæði skipti hann 400 dollurum í evrur. Í stað þess að fá ca 350 evrur fékk hann 250 af því þjónustugjaldið sem bankinn í Leifsstöð tók var 10.94%!”
Ingibjörg birtir mynd af kvittuninni sem fylgdi viðskiptunum og á henni sést, svart á hvítu, um hvað málið snýst. Um er að ræða gjaldeyrisskiptaþjónustuna Prosegur Change og áttu viðskiptin sér stað þann 23. apríl síðastliðinn.
Nokkuð hefur verið fjallað um þessa þjónustu á Keflavíkurflugvelli og sagði DV til dæmis frá Íslendingi sem hugðist taka út 400 evrur úr hraðbanka Euronet en fyrir það átti að rukka hann um rúmar 65 þúsund krónur. Þetta var 5.321 krónu dýrara en gengið sem gefið var upp hjá Landsbankanum.
Fjölmargir leggja orð í belg við færslu Ingibjargar og eru flestir á því að þetta sé full mikið af því góða.
„Úff,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir og „Oj bara“ segir útvarpskonan Sigurlaug M. Jónasdóttir. Þá segir þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson: „Sjálftaka sem þarf að taka á – og já, ég er í aðstöðu til þess.“