fbpx
Sunnudagur 08.desember 2024
Fréttir

Jón sakar Heimildina um árás á fjölskyldu sína: Sonur hans leitar til lögmanns og hyggst leggja fram kæru

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. nóvember 2024 07:42

Jón Gunnarsson er dottinn út af þingi. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gunnarsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, er ómyrkur í máli í garð Heimildarinnar og sakar hann fjölmiðilinn um árás á fjölskyldu sína. Jón skrifar yfirlýsingu á Facebook þar sem hann fer yfir málið.

„Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi,“ segir Jón í yfirlýsingu sinni og fer svo yfir málið.

Sóttur með einkabílstjóra

„Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags,“ segir Jón.

Hann segir að í síðustu viku hafi hins vegar komið í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son hans á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti.

„Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna,“ segir Jón.

Gaf eitthvað annað til kynna

Hann segir að þessar „njósnir“ um son hans hafi byrjað um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig úr ráðuneytum sínum. Um helgina kveðst hann svo hafa fengið tölvupóst frá Aðalsteini Kjartanssyni, blaðamanni Heimildarinnar, þar sem lagðar voru fyrir hann sjö spurningar sem hann segir ljóst að byggi á efni úr samtali sonar hans við „fjárfestinn“.

„Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi,“ segir Jón og bætir við að það hafi verið mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn.

„Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld,“ segir hann.

Of langt gengið

Jón bendir á að hann hafi lengi verið í stjórnmálum og fái reglulega á sig gagnrýni sem þingmaður og fyrir hans stjórnmálaskoðanir. Það sé hluti af því að starfa á þessum vettvangi.

„Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu,“ segir Jón og bætir við að sonur hans hafi leitað til lögmanns og hyggist leggja fram kæru vegna málsins. Þarna hafi verið brotið gróflega gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það.

„Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Vuk í Fram
Fréttir
Í gær

Ólafur varar við samstarfi við Ingu Sæland – „Krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða“

Ólafur varar við samstarfi við Ingu Sæland – „Krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða“
Fréttir
Í gær

Hannes gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega: „Ég veit ekki á hvaða ferðalagi hún er“

Hannes gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega: „Ég veit ekki á hvaða ferðalagi hún er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tónlistarflytjendurnir sem fá listamannalaun 2025

Tónlistarflytjendurnir sem fá listamannalaun 2025
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári hefur ekki trú á að stjórnarmyndunin takist – „Ég býst við að Samfylkingarfólk sé að vakna upp við þessa stöðu núna“

Gunnar Smári hefur ekki trú á að stjórnarmyndunin takist – „Ég býst við að Samfylkingarfólk sé að vakna upp við þessa stöðu núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Örvæntingarfull leit að lottóvinningshafa – Milljarðar renna honum úr greipum á laugardag

Örvæntingarfull leit að lottóvinningshafa – Milljarðar renna honum úr greipum á laugardag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr meðferðargangur opnaður á Litla Hrauni

Nýr meðferðargangur opnaður á Litla Hrauni