fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Norðurkóreskir hermenn eru komnir til Úkraínu – Hvað gerir Suður-Kórea?

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 30. október 2024 04:20

Hér sjást að sögn norðurkóreskir hermenn að taka við rússneskum búnaði. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir helgi var staðfest að norðurkóreskir hermenn séu komnir til Rússlands og Úkraínu en orðrómar um þetta höfðu verið á sveimi dögum saman. Nú velta margir fyrir sér hvernig Suður-Kórea mun bregðast við því að hermenn frá erkióvininum í Norður-Kóreu séu komnir til Úkraínu til að berjast við hlið Rússa.

Liselotte Odgaard, hjá Hudson stofnuninni, sagði í samtali við TV að nú fari spennan vaxandi varðandi viðbrögð Suður-Kóreu. Það geti farið svo að Suður-Kórea auki stuðning sinn við Úkraínu en Suður-Kórea er stórt vopnaframleiðsluland og á topp tíu listanum yfir þau ríki sem verja mestu til varnarmála.

Hún sagðist ekki telja að suðurkóreskir hermenn verði sendir til Úkraínu til að berjast við hlið Úkraínumanna og skipti þar engu að Suður-Kórea styðji baráttu Úkraínumanna einarðlega.

Hvað varðar áhrif norðurkóreskra hermanna á vígvellinum, þá sagðist hún telja að þau verði ekki mikil. „Miðað við það sem við vitum um norðurkóreska herinn, þá er erfitt að sjá að þetta muni verða afgerandi því hermennina skorti þjálfun og bardagareynslu. Ég sé ekki annað en að þeir verði bara fallbyssufóður,“ sagði hún.

Hún sagði að koma norðurkóresku hermannanna geti í raun orðið sjálfsmark fyrir Rússa. Ef Suður-Kórea láti Úkraínu vopn í té, sem gera að verkum að Úkraínumenn geti gert harðar árásir á Rússa, þá geti koma norðurkóresku hermannanna komið í bakið á Rússum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“