Stjórnarslitin sem áttu sér stað um helgina komu fjölmörgum í opna skjöldu og hafa víðtækar afleiðingar. Þannig vill til að tveir ráðherrar, Ásmundar Einar Daðason og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hafa nýlega ráðið til sín aðstoðarmenn sem sjá nú fram á það að gamanið gæti orðið stutt.
Þann 1. október síðastliðinn var tilkynnt um að fjölmiðlakonan góðkunna, Kristjana Arnarsdóttir, hefði tekið við sem aðstoðarmaður Ásmundar Einars, og sagt upp störfum á RÚV. Kristjana er þó orðinn reynslubolti í pólitíkinni miðað við Lilju Hrund Lúðvíksdóttur sem hóf störf á föstudaginn, þann 11. október, sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar. RÚV greindi frá þessu.
Framundan eru því óvissutímar hjá hinum nýráðnu aðstoðarmönnum. Komi til þess að Ásmundur Einar og Þórdís Kolbrún haldi ekki embættum sínum þá fá hinir nýju aðstoðarmenn biðlaun til þriggja mánaða, þrátt fyrir stuttan starfstíma.