fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sambúðarkona látins manns átti ekki tilkall til þriðjungs af séreign sambýlismanns síns, en hún taldi sig eiga slíkan rétt á grundvelli erfðaskrár.  Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar sem féll í gær þar sem konan laut í lægra haldi fyrir lífeyrissjóði sambýlismanns síns.

Konan og maðurinn höfðu gert með sér sameiginlega erfðaskrá þar sem þau meðal annars gerðu ráð fyrir því að það þeirra sem yrði langlífara myndi erfa um þriðjung eigna þess látna. Eins var þar tekið fram að langlífari ætti að fá að búa áfram á sameiginlegu heimili þeirra eins lengi og það kynni að vilja eða þar til eignin yrði seld.

Fékk konan þriðjung þeirra eigna sem runnu í dánarbúið en sambýlismaður hennar hafði einnig átt um 43 milljónir í séreign hjá lífeyrissjóði. Taldi konan rétt að hún fengi þriðjunginn af séreigninni í samræmi við erfðaskrá og vilja sambýlismanns síns. Það kom babb í bátinn. Séreign rennur aðeins inn í dánarbú þegar ekki er um skylduerfingja að ræða. Skylduerfingjar eru hjúskaparmaki og börn. Maðurinn átti þrjú börn og greiddi lífeyrissjóðurinn þeim séreignina í jöfnum hlutföllum.

Þetta vildi konan ekki sætta sig við og taldi hún að lög se gilda um lífeyrisréttindi og starfsemi lífeyrissjóða ekki útiloka það að erfingjar samkvæmt erfðaskrá, svokallaðir bréferfingjar, fái séreign í arf. Lífeyrissjóðurinn vísaði þó til þess að það sé aðeins mögulegt þegar ekki er um skylduerfingja að ræða. Þá rennur séreign inn í dánarbú og er skipt í samræmi við lög og erfðaskrá ef slíkri er fyrir að fara. Hér var um skylduerfingja að ræða og því útilokað fyrir konuna að krefjast þriðjungs séreignarinnar.

Hæstiréttur tók málið til skoðunar enda hefur það fordæmisgildi. Var það mat dómara að út frá lögunum megi álykta að það sé ekki hægt að ráðstafa séreign með erfðaskrá, enda rennur hún aðeins í dánarbú ef ekki er um skylduerfingja að ræða. Séreign mannsins í máli þessu rann ekki inn í dánarbúið og gat konan því ekki gert tilkall á grundvelli erfðaskrár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys í Skorradalsvatni

Banaslys í Skorradalsvatni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri