fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Fréttir

Crossfitkappinn Hinrik Ingi dæmdur fyrir margvísleg ofbeldisbrot – Frelsissvipti ungan mann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 28. febrúar 2022 15:50

Hinrik Ingi Óskarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinrik Ingi Óskarsson, fyrrverandi keppandi í Crossfit og einkaþjálfari, var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir frelsissviptingu, líkamlegt ofbeldi, brot á nálgunarbanni, skemmdarverk á bíl, fíkniefnabrot og fleira.

Honum var meðal annars gefið að sök að hafa svipt mann frelsi sínu í rúma klukkustund mánudagskvöldið 23. nóvember 2020, sótt manninn á heimili sitt, neytt hann upp í bíl, ekið með honum að ísbúð, tekið af honum snjallsíma og slegið hann með krepptum hnefa í búkinn. Var síðan ekið niður í bílakjallara í Hamraborg þar sem þolandinn reyndi að flýja undan Hinrik Inga en hann náði honum og sló hann  með krepptum hnefa í búkinn auk þess að taka hann hálstaki og þrengja að öndunarvegi.

Hinrik Ingi hótaði manninum því að gera fjölskyldu hans mein, sem og hundi, og kveikja í húsnæði og bílum í eigu fjölskyldunnar.

Þá er hann sakaður um að hafa slegið mann hnefahöggi í andlitið í anddyri íbúðarhúsnæðis á Seltjarnarnesi vorið 2020. Hlaut maðurinn nefbrot, tognun á kjálka og mar á kinn.

Ennfremur var hann sakaður um að hafa skemmt bíl sem var í bílagleymslu við Kringluna. Gerðist það í upphafi janúar 2021.

Þá var Hinrik Ingi sakaður um brot á nálgunarbanni en hann hringdi 10 sinnum í aðila sem var með nálgunarbann á hann.

Þá var hann sakaður um ýmis umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.

Hinrik Ingi játaði öll brot sín skýlaust fyrir dómi.

Hann var dæmdur í 15 mánaða fangelsi en 12 mánuðir eru skilorðsbundnir. Hann var dæmdur til að greiða þolendum samtals 650 þúsund krónur í miskabætur, sem og málskostnað.

Dóminn má lesa hér

Þess má geta að Hinrik Ingi var seint í janúar úrskurðaður í síbrotagæslu eftir að hafa gengið berserksgang á Reykjanesbraut

Hinrik Ingi hnepptur í síbrotagæslu – Gekk berserksgang á Reykjanesbraut

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“