fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Segir að Ísland myndi „óhjákvæmilega dragast inn í átök Bandaríkjanna og Rússlands“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 27. janúar 2022 11:36

Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil ólga hefur verið að undanförnu á landamærum Rússlands og Úkraínu. Við landamærin hafa safnast hermenn frá Rússlandi  og á móti hefur Nató sent herlið til Úkraínu enda óttast margir að innrás Rússa í Úkraínu sé yfirvofandi. 

Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, veltir hlut Íslendinga í þessum deilum fyrir sér í pistli sem birtist á Vísi í dag. Þar bendir hann til að mynda á að umstang Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið meira síðan árið 2006. „Nú sveima kafbátaleitarvélar gerðar út frá Keflavík um Atlantshafið í leit að rússneskum kjarnorkukafbátum og vegna spennunar í Úkraínu eru Bandaríkjamenn að auka við herlið sitt í Eystrasaltsríkjunum og á Balkanskaga með tilheyrandi liðsflutningum,“ segir hann í upphafi pistilsins.

„Rússar safna nú herliði við landamæri Úkraínu og ráðamenn Nató keppast við að hóta þeim ef þeir ráðist inn. Flestir álitsgjafar telja þó allsherjar innrás ólíklega en hættan á stríði eykst eftir því sem báðir aðilar auka við herafla sinn og vígbúnað. Nató hefur hafnað kröfum Rússa um að draga herafla sinn frá Austur-Evrópu og útiloka Nató-aðild fleiri nágrannaríkja Rússa en það er ljóst að friður kemst ekki á fyrr en að Rússar telja öryggi sitt tryggt.“

„Þetta kyndir undir átökum“

Guttormur segir að þó framferði Rússlands í Úkraínu sé árásargjarnt þá hafi stefna Bandaríkjanna einkennst af fullkomnu ábyrgðarleysi og að það ábyrgðarleysi hafi dregið Úkraínu og Evrópu alla inn í ónauðsynleg átök við Rússland. „Vesturveldin nýttu sér veikleika Rússlands eftir fall Sovétríkjanna til hins ýtrasta með því að þenja landamæri hernaðarbandalagsins Nató til austurs þrátt fyrir loforð um annað,“ segir hann.

„Bandaríkin lofuðu svo Úkraínu og Georgíu aðild árið 2008. Þjóðverjar og Frakkar studdu það ekki enda meðvitaðir um að Rússland sem þá var farið að jafna sig eftir efnahagshrun 10. áratugarins og hafði tekið upp harðari utanríkisstefnu í stjórnartíð Pútíns myndi ekki una við það. Það fór enda svo að rússneski herinn réðst inn í Georgíu síðar um árið og Úkraína hefur bæði misst Krímskaga og átt í sífelldum átökum í austurhéruðunum síðan þá.“

Guttormur segir þessi átök og gagnkvæmar refsiaðgerðir hafa skaðað efnahag allra Evrópuríkja og aukið hættuna á stórstyrjöld. „Bandaríkin finna hinsvegar lítið fyrir því og hafa enga sérstaka hagsmuni í Úkraínu en halda uppi tálvoninni um Nató-aðild og lofa frekari stuðningi án mikillar innistæðu. Þetta kyndir undir átökum, bæði innbyrðis og við Rússland sem er það síðasta sem Úkraína þarf, enda eitt fátækasta fyrrum Sovétlýðveldið,“ segir hann.

„Hagsmunir Íslands liggja í friðsamlegum samskiptum við Rússland“

Guttormur kemur þá að því hvar Ísland stendur í þessu öllu saman. „Þó að Ísland eigi engan þátt í átökum í Úkraínu myndum við óhjákvæmilega dragast inn í átök Bandaríkjanna og Rússlands vegna Nató-aðildar landsins og hernaðaruppbyggingar Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli,“ segir hann.

„Það er óskandi að íslensk stjórnvöld beygi sig ekki undir stríðsæsingar Bandaríkjanna eins og svo oft áður en tali frekar fyrir friðsamlegri lausn sem leggi grundvöll að betri samskiptum við Rússland og frið í Úkraínu. Hagsmunir Íslands liggja í friðsamlegum samskiptum við Rússland, ekki vígvæðingu og viðskiptaþvingunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi
Fréttir
Í gær

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Í gær

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda