fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Fundu erfðabreytileika sem hafa áhrif á blóðleysi af völdum járnskorts

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 16:40

Íslensk erfðagreining Mynd/Vilhelm

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný rannsókn á erfðum og járnefnaskiptum líkamans leiðir í ljós erfðabreytileika sem hafa veruleg áhrif á tíðni blóðleysis af völdum járnskorts sem er landlægt víða um heim. Rannsóknin birtist í tímaritinu Communications Biology í dag og er sú langstærsta á sínu sviði en hún var unnin af vísindamönnum Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) og samstarfsfólki þeirra innan íslenska heilbrigðiskerfisins, Háskóla Íslands, Háskóla Kaupmannahafnar og Cambridge háskóla.

Þetta kom fram í tilkynningu sem Íslensk erfðagreining sendi á fjölmiðla í dag.

Vísindamennirnir kortlögðu erfðabreytileika í erfðamengi mannsins sem hafa áhrif á járnefnaskipti líkamans en járn er eitt af þeim snefilefnum líkamans sem hvað oftast skortir, sérstaklega hjá börnum og konum á barneignaraldri. Vísindamennirnir kortlögðu erfðabreytileika í erfðamengi mannsins sem hafa áhrif á járnefnaskipti líkamans en járn er eitt af þeim snefilefnum líkamans sem hvað oftast skortir, sérstaklega hjá börnum og konum á barneignaraldri.

Alls fundust 62 erfðabreytileikar sem tengjast járnefnaskiptum almennt, þar af 48 sem ekki var áður vitað að tengdust járni. Nokkrir þessara erfðabreytileika höfðu einnig áhrif á hvort einstaklingar þróa með sér járnskort eða járnofhleðslu. Rannsóknin eykur verulega skilning okkar á járnefnaskiptum líkamans. Hún afhjúpar í fyrsta sinn algenga erfðabreytileka sem tengjast járnskorti.

Auk járnskorts eru til sjúkdómar, meðal annars erfðasjúkdómar sem valda járnofhleðslu í líkamanum, og hafa í för með sér alvarlega fylgikvilla, svo sem liðverki, lifrarskorpu, lifrarkrabbamein, sykursýki og hjartavandamál. Rannsóknin getur einnig nýst til að skima fyrir og jafnvel koma i veg fyrir alvarlegar afleiðingar járnofhleðslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu