fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Arnar Ævarsson nýr framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – Fyrsti karlmaðurinn

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 15:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Heimilis og skóla, lands­sam­taka for­eldra hefur ráðið Arnar Ævarsson í starf framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við starfinu af Hrefnu Sigurjónsdóttur sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra síðastliðin tíu ár.

Arnar Ævarsson hefur víðtæka reynslu á vettvangi skóla-, frístunda- og forvarnarmála og hefur unnið á þeim vettvangi meira og minna frá árinu 1991. Síðastliðin ár hefur hann starfað við ráðgjöf og greiningar er varða umbætur í skólastarfi og komið að bæði innra og ytra mati grunnskóla nú síðast fyrir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.

Arnar útskrifaðist úr kennslufræði (B.Ed ) frá Kennaraháskóla Íslands og lauk í framhaldi M.Sc í kennslufræði með áherslu á skilvirkni og stefnumótun frá Háskólanum í Groningen í Hollandi.. Hann er einnig með M.Sc í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Að sögn Sigrúnar Eddu Eðvarðsdóttur formanns Heimilis og skóla þá voru margir sem sýndu starfi framkvæmdastjóra áhuga en segja má að með ráðningu Arnars sé á vissan hátt brotið blað í sögu samtakanna þar sem hann er fyrsti karlmaðurinn til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Heimilis og skóla í tæplega 29 ára sögu samtakanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu