fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Mikið annríki hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 1. janúar 2021 08:42

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt. Margar kvartanir bárust vegna hávaða víða um höfuðborgarsvæðið. Mikið var um minniháttar bruna í ruslagámum og margar tilkynningar um ölvaða ökumenn bárust. Í heildina voru 120 mál skráð í dagbók lögreglunnar. Hér verður stiklað á stóru yfir það sem helst bar til tíðinda.

Fjórir ökumenn voru handteknir á vaktinni, grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Einn þeirra hafði ekið á vegrið og umferðarljós áður en hann var handtekinn. Hann er nú í fangageymslu.

Margar tilkynningar bárust um eld í flugeldum, brennur og eld í ruslagámum. Tjón var minniháttar og brennumálin reyndust minniháttar og brennugestir flestir farnir á brott þegar lögreglan kom á vettvang.

Á fyrsta tímanum í nótt hringdi maður í lögregluna og sagðist vera eftirlýstur. Það reyndist hann vera og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar máls.

Í austurborginni réðust nokkrir menn á einn. Þeir voru handteknir nærri vettvangi. Málið er til rannsóknar.

Um klukkan fjögur vildi hópur fólks komast í partí á hóteli í miðborginni. Hámarksfjöldi var í herberginu að sögn hótelstarfsmanna og þurftu gestirnir því frá að hverfa.

Á fjórða tímanum voru tveir handteknir eftir slagsmál í fjölbýlishúsi. Annar þeirra þarfnaðist aðhlynningar á slysadeild eftir átökin.

Á sjöunda tímanum var tilkynnt um mann liggjandi í snjóskafli. Tilkynnandi kannaði með ástand mannsins sem fældist við það og hljóp á brott. Meira var ekki aðhafst í málinu enda maðurinn ekki borin neinum sökum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð