
Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 1. janúar 2021, sæmdi forseti Íslands 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru:
Bernd Ogrodnik brúðumeistari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til brúðuleikhúss og íslenskrar menningar
Björn Þór Ólafsson fyrrverandi íþróttakennari, Ólafsfirði, riddarakross fyrir framlag til skíðaíþrótta, félagsmála og menningarlífs í heimabyggð
Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir störf og fræðslu á sviðum talmeinafræði og táknmáls
Halldór Benóný Nellett skipherra, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir forystu á vettvangi landhelgisgæslu og björgunarstarfa
Helga Sif Friðjónsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Kópavogi, riddarakross fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa
Helgi Ólafsson rafvirkjameistari, Raufarhöfn, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, lista og menningar í heimabyggð
Hrafnhildur Ragnarsdóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir og miðlun þekkingar um mál og málnotkun, málþroska barna og þróun læsis 8.
Jón Atli Benediktsson rektor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til alþjóðlegra vísinda og nýsköpunar á sviði fjarkönnunar og stafrænnar myndgreiningar og störf í þágu háskólamenntunar
Pétur H. Ármannsson arkitekt, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á sögu byggingarlistar á Íslandi og miðlun þekkingar á því sviði
Pétur Guðfinnsson fyrrverandi útvarpsstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir forystustörf á vettvangi íslenskra fjölmiðla
Sigrún Árnadóttir þýðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir þýðingarstörf og framlag til íslenskrar barnamenningar
Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar
Vanda Sigurgeirsdóttir lektor og fyrrverandi knattspyrnumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til knattspyrnu kvenna og baráttu gegn einelti
Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til hjúkrunar og heilbrigðisþjónustu á Íslandi og á alþjóðavettvangi