fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

14 ára sonur Kristjáns fékk lífstíðardóm -„Tölfræðin er á móti honum. En ég hef fulla trú“

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 13. desember 2020 12:00

Kristján Jóhann Matthíasson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sonur Kristjáns Jóhanns Matthíassonar, Brandon, var einungis 12 ára gamall þegar hann ásamt hópi ungra drengja stakk og myrti unglingsdreng. DV hefur fylgst með þróun málsins frá árinu 2016 en Brandon fékk reynslulausn fyrir tveimur mánuðum.

Brandon Richmond var aðeins 12 ára gamall þegar ódæðisverkið var framið þann 14. mars 2007 í London í Bretlandi. Brandon var í hópi drengja er réðust á hinn 16 ára gamla Kodojo Yenga með fyrrgreindum afleiðingum. Verknaðurinn hefur verið talinn innvígsluathöfn í götuklíku en drengirnir, sem voru á aldrinum 12-16 ára, voru allir meðlimir í glæpaklíku þrátt fyrir að vera barnungir og íklæddir skólabúningum. 

Missti trúna

Kristján og móðir drengsins kynntust í Bretlandi þar sem þau bjuggu saman um tíma. Brandon er yngri sonur þeirra en saman eiga þau einnig dreng sem er sex árum eldri. Í viðtali við DV árið 2016 lýsti Kristján aðdraganda glæpsins sem svipti son hans æskunni.

Haustið áður kvaddi Kristján Jóhann son sinn eftir að hann hafði dvalist í tvær vikur hjá honum á Íslandi með þeim orðum að ef hann tæki sig ekki á þá biði hans útsýni í gegnum rimla. Rúmu hálfu ári síðar fékk hann bréf með þeim fregnum að 12 ára sonur hans sæti í einangrun í fangelsi, grunaður um að hafa stungið unglingspilt í hjartað. „Sama hvað börnin manns gera þá snýr maður aldrei baki við þeim,“ sagði Kristján við blaðamann DV fyrir fjórum árum.

Hann segir atvikið hafa litað líf sitt dökkum litum. „Þegar dómurinn var lesinn upp hélt ég fyrst að þetta hefði verið einhver mislestur. Ég missti trúna á mannkynið í smá tíma. Þó svo að ég hafi alltaf sagt að hann eigi að taka út sína refsingu þá var þetta ekki nokkur glóra. Ég var niðurbrotinn, og ekki var mikill skilningur í kringum mann.“

Brandon hefur setið í fangelsi í 15 ár en hann hlaut lífstíðardóm með möguleika á reynslulausn eftir 15 ár. Brandon er í dag 26 ára gamall. „Þetta er góður drengur,“ segir Kristján um son sinn. „Hann losnaði fyrir tveimur mánuðum og er á reynslulausn því hann hefur staðið sig vel. Það dróst reyndar aðeins vegna COVID. Hann er enn að bíða eftir niðurstöðu um hvort hann megi ferðast því hann er á skilorði og verður á því næstu ár,“ segir Kristján sem vonast til þess að sjá drenginn sinn sem fyrst.

Ljósið í myrkrinu

Kristján segir að það jákvæða í þessu hörmulega máli sé að sonur hans hafi verið fjarlægður úr þessum aðstæðum sem skapast höfðu í kringum hann með gengjamenningu og fíkniefnum. Hann sé lifandi sönnun þess að betrun getur átt sér stað í fangelsi. „Mér finnst breska kerfið hafa verið að gera góða hluti. Ef þú ert að standa þig vel þá færðu að fara í opið fangelsi, stunda þar vinnu og nám. Brandon er með brotalausan feril innan fangelsins.“

Brandon hefur lagt stund á ýmiss konar nám að sögn Kristjáns, svo sem pípulagnir, einkaþjálfun, nudd og næringarfræði. „Hann hefur mikinn áhuga á líkamsrækt og heilsu. Reykir ekki og drekkur ekki einu sinni kaffi,“ segir Kristján.

Þegar sonur hans heimsótti hann síðast til Íslands, þá 11 ára gamall, var hann kominn í mikla kannabisneyslu en hefur að sögn Kristjáns algjörlega snúið við blaðinu. „Ég er búinn að vera skíthræddur því tölfræðin er á móti honum. En ég hef fulla trú á honum. Þetta er undraverður drengur og hann stefnir á háskóla.“

Langþráð heimsókn

Kristján sá Brandon síðast fyrir þremur árum. „Ég og tvö yngstu systkyni hans heimsóttum hann. Það var kodak-móment. Það voru tár og allt. Við yngsti sonur minn fórum svo að heimsækja hann á síðasta ári. Mættum í fangelsið og biðum og biðum en þá hafði gleymst að láta hann vita að við værum að koma og hann var í dagsleyfi,“ segir Kristján sem vonast til að hitta son sinn sem fyrst.

„Hann vill taka upp Kristjánsson. Hann ætlar að gera það strax þegar hann má ferðast, hann þarf að fara milli borga til að sækja um það. Ég hef verið að senda honum myndir og bækur eins og Grettis sögu. Núna er ég að fara að senda honum Sjálfstætt fólk,“ segir Kristján.

Ég mun styðja hann

„Þetta var ljótt mál. Dómurinn átti að vera fordæmisgefandi dómur til að taka á þessu mikla ofbeldi meðal ungs fólks. Eins og ég elskaði London þá reyni ég að forðast hana í dag. Hún er svo breytt frá því að ég kom þar fyrst 1984. Það er mikið um gengi og ofbeldi í mörgum þessara hverfa.

Ég finn til með löggunni orðið. Þetta er svakalegur heimur. Glæpaheimurinn hér er ekki betri. Ég er hræddur um að eitthvað slæmt eigi eftir að gerast hér. Undiraldan er þannig. Fólk hugsar alltaf: Þetta er ekki barnið mitt,“ segir Kristján sem er fimm barna faðir.

Glæpaklíkur

Breskir fjölmiðlar fjölluðu ítarlega um málið á sínum tíma og vakti það upp umræður um vaxandi gengjamenningu í Lundúnum, hækkandi glæpatíðni og neikvæð áhrif þess á ungdóm landsins. Árið sem Kodjo Yenga var myrtur höfðu 26 ungmenni verið drepin af gengjum í London. Hnífstungur eru þar langalgengastar og eru enn

Tölur yfir morð á ungmennum 13-19 ára hækkuðu enn árið eftir og voru 28 ungmenni myrt í Lundúnum árið 2008. Tölurnar lækkuðu næstu ár en tóku aftur að hækka svo um munar eftir 2017. Á síðasta ári voru 25 ungmenni myrt í London sem er hæsta tala látinna síðan 2008.

Paul O’Shea, skólastjóri í St. Charles Catholic Sixth Form College þar sem Kodojo Yenga stundaði nám, sagði í viðtali við The Guardian ári eftir morðið að glæpaklíkur væru stórt vandamál. Á aðeins 9 mánuðum árið 2007 voru tveir nemendur skólans myrtir af liðsmönnum glæpagengja. Í bæklingi sem skólastjórinn skrifaði og dreifði til nemenda lýsir hann ástæðunni fyrir því að ungir drengir gangi til liðs við gengi. „Þeir virðast vera harðir. Þeir virðast vera að skemmta sér vel. Enginn skiptir sér af þeim. Þegar þú ert drengur en þráir að vera maður, þá virðast klíkumeðlimirnir vera menn. Ef einhver abbast upp á þig geta þeir gengið í málið.“

Þessi frétt birtist fyrst í tölublaði DV þann 11. desember

DV hefur áður fjallað um mál Kristjáns og Brandon:

Sonur Kristjáns varð manni að bana 12 ára gamall: „Þú snýrð ekki baki við börnunum þínum“

Sonur Kristjáns afplánar lífstíðardóm í Bretlandi – „Ég missti trúna á mannkynið í smá tíma“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni