Hafa komið saman fyrir utan kvennadeild Landspítalans alla þriðjudaga og beðið fyrir fóstrum


„Fólk horfði á þau úr bílunum þau stóðu þarna og voru að þylja upp einhverjar maríubænir,“ segir Magðalena Sif sem tók meðfylgjandi mynd á Hringbraut um hádegisbilið í dag. Þar hafði bænahópur á vegum kaþólsku kirkjunnar komið sér fyrir á gangstéttinni á móti Landspítalanum til þess að halda uppi mótmælum gegn fóstureyðingum.
Undafarin ár hefur hópurinn stillt sér upp fyrir utan kvennadeild Landspítalans á hverjum þriðjudegi til þess að biðja fyrir fóstrum og kalla eftir hugarfarsbreytingu til fóstureyðinga. Um er að ræða félaga í Maríukirkju og félaginu Lífsvernd. Hefur hópurinn þá farið með hljóða bæn og haldið á plastspjöldum með ljósmyndum af fóstrum.
Hafa mótmæli hópsins vakið harða gagnrýni.
Í mótmælahópnum má finna meðlimi úr félaginu Lífsvernd en á heimsíðu félagsins má finna áróðursefni gegn fóstureyðingum. Þar segir meðal annars:
„Við trúum að ófædd börn hafi ófrávíkjanlegan rétt til lífs frá getnaði og að alls engar kringumstæður réttlæti beina fóstureyðingu.
Það eru alls engar kringumstæður sem geta réttlætt fóstureyðingu. Lífið er heilagt, án undantekninga. Það er einfaldlega alltaf rangt að deyða ófædd börn, óháð aðstæðum móðurinnar. Við getum haft samúð með móðurinni ef aðstæður hennar eru ekki góðar, en verðum að reyna að leysa vanda hennar og jafnframt þyrma lífi barnsins sem er byrjað að vaxa og dafna. Líf hefst við getnað.“
„Maður hélt að miðaldamyrkrið væri að baki en þá stendur allt í einu írskur prestur með hópi fólks fyrir utan Fæðingardeildina við Barónsstíg og vill hafa áhrif á konur,“ sagði Anton Helgi Jónsson í samtali við Pressuna árið 2014 en hann hafði þá orðið vitni að mótmælum hópsins, sem taldi sex manns, og ritaði í kjölfarið harðorða færslu á facebook.
„Ég hef aldrei séð hópinn jafn stóran. Það er írskur prestur sem stendur fyrir þessu bænahaldi og markmiðið hjá honum er að knýja fram hugarfarsbreytingu meðal kvenna sem vilja ráða yfir eigin líkama. Þessi prestur er fulltrúi sömu stofnunar og þrælkaði þúsundir írskra kvenna í hinum illræmdu þvottahúsum sínum allt fram á tíunda áratug síðustu aldar. Konurnar voru oftar en ekki dæmdar til betrunarvistar í þvottahúsunum vegna þess að þær höfðu orðið ófrískar utan hjónabands. Sumar eftir feður sína. Sumar eftir presta kaþólsku kirkjunnar.“
„Við biðjum fyrir vernd fyrir ófædd börn og stöðvun á fóstureyðingum. Við biðjum fyrir hugarfarsbreytingu til fóstureyðinga því við trúum að ófædd börn séu líka manneskjur og þau eigi að fá möguleika á að lifa,“ sagði kaþólsk ipresturinn Denis O’Leary , forsprakki hópsins í samtali við Fréttablaðið árið 2014. Þá bætti hann við á öðrum stað:
„Okkur finnst ekki í lagi að eyða fóstri og við viljum gjarnan koma þeim skilaboðum til annarra. Þó að fóstureyðingar sé leyfðar í dag viljum við fá fólk til að hugsa og vonumst eftir því að með tímanum sjái það hversu rangar þær eru.“
Blaðamaður DV var einnig viðstaddur mótmæli hópsins í desember 2014 en þá hafði Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona nýlega ákveðið að efna til undirskriftarsöfnunar gegn hópnum. Vildi hún þá hvetja stjórn Landspítalans til þess að meina hópnum aðgang að svæðinu í mótmælaskyni.
Einn úr hópnum tjáði blaðmanni frá því að hann liti svo á að fóstureyðingar leiði af sér ofbeldi gegn konum. Þær væru neyddar í slíkar aðgerðir gegn sínum vilja. Þá bætti hann við að hann væri búinn að berjast fyrir því á vettvangi Evrópusambandsins að banna allar fóstureyðingar.