fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Guðni Guðnason: „Auðvelt að tortryggja mig“

Guðni svarar fyrir meint svik

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. maí 2016 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í helgarblaði DV var fjallað um lífshlaup og starfsferil Guðna Guðnasonar, sem er í senn ævintýralegt og að margra mati ótrúlegt. Guðni, sem býr í Japan, þáði ekki boð um að koma í viðtal áður en greinin birtist, en gerði það í kjölfarið.

Blaðakona DV spjallaði við Guðna á Skype og innti hann eftir skýringum á ýmsu á ferli hans sem fólki hefur þótt í besta falli ótrúlegt.

Í kjölfar jarðskjálftans í Fukushima hóf hann hjálparstarf sem enn er við lýði. Hann rekur fyrirtæki sem gefur út tónlist og framleiðir kvikmyndir, en aðalstarf hans er rekstur skólans Rocky Mountain Mystery School. Orðróm um að hann sé að vinna að mynd með David Hasselhoff segir hann þó alrangan. „Skólinn minn er í 48 löndum.“ Guðni sendir blaðakonu hlekki á heimasíður sem staðfesta ofangreint.

Skjáskot úr kvikmyndinni Hrafninn flýgur. Guðni lék þann sem kastaði hinum þunga hníf.
Hrafninn flýgur Skjáskot úr kvikmyndinni Hrafninn flýgur. Guðni lék þann sem kastaði hinum þunga hníf.

Frægðin skiptir ekki máli

Sem unglingur byrjaði Guðni að fara til Englands til að nema andleg fræði. Þar segist hann hafa kynnst David Bowie á götu árið 1974.
„Það er alveg satt. Ég var 16 ára gamall og hann stoppaði mig og vin minn á götu. Ég missti sambandið við hann, kannski 5–6 árum síðar. Við hittumst í Englandi þegar ég kom þangað og líka í Berlín þegar hann bjó þar. Ég þekki mikið af frægu fólki, en fyrir mér er það bara fólk, og frægðin skiptir ekki máli.“

„Ég skil vel að það sé auðvelt að tortryggja mig,“ segir Guðni, „skólinn sem ég fór í, Hermetic Order of the Golden Dawn, er ekki einu sinni með vefsíðu. Í dag eru skólar sem nota þetta nafn en þeir eru ekki alvöruskólarnir. Minn skóli var stofnaður 1888 í London, en í raun byrjaði hann í Egyptalandi fyrir 3.000 árum hjá Salómón konungi, og hefur haft mörg nöfn.“

Dómsmál og landflótti

Guðni flutti frá Íslandi í kjölfar kærumáls eftir bardagamót sem hann hélt án tilskilinna leyfa. Málið fór fyrir dóm, en Guðni var ekki sakfelldur. Upp úr þessu segist Guðni hafa hrökklast úr landi til Bandaríkjanna, þar sem hann stofnaði skólann skömmu síðar.

Guðni segir það misskilning að hann státi af preststign í fjölmörgum trúarbrögðum. Hann segir þetta rangt, hann hafi kynnt sér trúarbrögðin, en lært shamanisma og kabbalah-fræði.

Gráðurnar að mestu misskilningur

Doktorsgráða í heimspeki og háskólagráða í sálfræði og viðskiptafræði, sem talað er um á vefsíðum sem tengjast Guðna, eru líka misskilningur. „Ég tók námskeið í sálfræði í Svíþjóð og viðskiptagráðan var frá verslunardeild Laugarnesskóla, sem starfrækt var á tímabili.“ Um doktorsgráðu í frumspeki, sem Guðni er sagður hafa á heimasíðu skólans, segir hann: „Þetta er gráða frá alvöru háskóla. En ég vil ekki nota þetta lengur. Minn eigin skóli varð fljótt miklu þekktari en skólinn sem ég lærði við. Þeir krefjast árgjalds til að viðhalda gráðunni, en ég skrifaði þeim bréf fyrir nokkru síðan og hef slitið á tengslin við skólann. Mér finnst gráður ekki skipta máli. Maður á ekki að hlusta á einhvern bara af því hann hefur gráðu fyrir aftan nafnið sitt.“

Um meinta Evrópumeistaratitla í karate segir Guðni: „Ég er með 2. gráðu svarta beltisins í Shotokan Karate, annað er bull. Ég keppti á tímabili og vann til ýmissa verðlauna, en engan Evróputitil. Á Íslandi vildu menn ekki samþykkja gráðuna mína í karate, en ég er viðurkenndur hér í Japan.“

Guðni segir einnig rangt að hann hafi verið listamaður ársins í Svíþjóð. „Ég fékk eins árs listamannalaun í Svíþjóð árið 1999. Titilinn ljóðskáld ársins kannast ég hins vegar við.“ Guðni sýnir blaðakonu bikar sem á stendur: „International Poet of Merit Award, presented to Guðni Guðnason, on this 25th day of August, 2002, by the International Society of Poetry.“ Að sögn sendi hann ljóð í samkeppni og vann hana. Verðlaunin voru veitt í Washington DC. Litlar upplýsingar er að finna um keppnina á netinu.

Lífvarðafyrirtæki Guðna í Bandaríkjunum er að hans sögn ennþá starfandi. Heimasíða þess er á netinu, en ekki tókst að sannreyna það sem þar kemur fram.

Guðni segist ekki kannast við doktorsritgerð sem dr. Ioannis Gaitanidis ritaði við Leeds-háskóla, um viðskiptahlið andlegra fræða. „Það er hópur af fólki í Englandi sem er mjög neikvæður gagnvart okkur. Við erum ekki ódýr skóli. En auðvitað verða andlegir skólar að taka gjöld eins og aðrir skólar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð