fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024

Bjarney bað nöfnu sína afsökunar

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 21. maí 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarney Bjarnadóttir, íþróttafræðingur og kennari, skrifaði stöðufærslu á Facebook-síðu sína fyrr í vikunni þar sem hún bað nöfnu sína, sem hún þekkti ekki til, afsökunar með orðunum: „Ég sagði blaðamanni að finna bara einhverja mynd af mér á Facebook, ég vil biðja alnöfnu mína afsökunar á að hún hafi farið á ranga Facebook-síðu.“

Um var að ræða frétt Morgunblaðsins um nýja vefgátt Íslenskrar erfðagreiningar, arfgerð.is. Á henni er hægt að skrá sig inn til þess að komast að því hvort einstaklingurinn beri erfðabreytuna BRCA2 genið sem eykur líkur á krabbameini.

Bjarney er sjálf arfberi og fór í fyrirbyggjandi brjóstnámsaðgerð, en bæði móðir og amma hennar létust úr krabbameini sem tengja má beint við stökkbreytingu í BRCA 2-geninu. Hefur Bjarney tjáð sig margoft opinberlega um reynslu sína, öðrum til fræðslu og stuðnings.

Vinir hennar höfðu gaman af þessum mistökum og fljótlega kom í ljós að nokkrir vina hennar þekktu til hinnar „röngu“ Bjarneyjar, voru þær kynntar í athugasemdum við stöðufærsluna og hlógu dátt, eins og aðrir að þessum mistökum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Kane og fleiri leikmenn vilja að Tuchel hætti við að hætta

Kane og fleiri leikmenn vilja að Tuchel hætti við að hætta
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fasteignafélagið Þórkatla kynnir leiguverð fasteigna í Grindavík – Taka við fyrstu eignunum í dag

Fasteignafélagið Þórkatla kynnir leiguverð fasteigna í Grindavík – Taka við fyrstu eignunum í dag
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Guardian: Helmingslíkur á að Ten Hag verði rekinn

Guardian: Helmingslíkur á að Ten Hag verði rekinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.