fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Myndband: Heimsþekkt söngkona lækaði myndband með frumsömdum texta Sjönu Rutar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 29. maí 2018 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Sjana Rut er 19 ára og nýlega sendi hún inn frumsaminn texta við lag Jessie J, sem söngkonan heimsþekkta lækaði við, en hún kemur til Íslands í næstu viku að halda tónleika.

Jessie J gaf nýlega út plötuna R.O.S.E. og á því er lagið Rose Challenge, sem er instrumental. Jessie J óskaði eftir að aðdáendur hennar myndu setja myndband af sér á Instagram með myllumerkinu#rosechallenge og syngja einhvern texta við lagið.

Sjana Rut samdi frumsaminn texta, söng hann við lagið og setti á Instagram.

Nokkrum klukkustundum síðar fékk hún tilkynningu: „Jessie J liked your post.“Þetta var ansi skemmtileg uppákoma þar sem Sjana Rut er mikill aðdáandi hennar.

Og til gamans má geta að Jessie J mun koma til Íslands í næstu viku í annað sinn og halda tónleika. Sjana Rut fór á síðustu tónleika árið 2015 og mun auðvitað fara aftur í ár.

Sjana Rut er íslensk söngkona og hefur verið að gefa út sín eigin lög frá 2016. Lög hennar hafa notið vinsælda hér innanlands, en einnig fyrir utan landsteinana. Nýjustu lögin hennar hafa til dæmis verið spiluð á iHeart Radio í Bandaríkjunum og víða annarsstaðar. Núna er Sjana og bróðir hennar, NumerusX, að leggja lokahönd á fyrstu EP plötu þeirra systkina, en hún kemur út innan tíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Orðið mjög ólíklegt að Rashford verði keyptur yfir

Orðið mjög ólíklegt að Rashford verði keyptur yfir
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
EyjanFastir pennar
Fyrir 13 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.