
Þú finnur líklegast aldrei kassa af Cap‘n Crunch eða pakka af Slim Jims heima hjá hipster. Af hverju? Jú kannski vegna þess að vörurnar eru ekki lífrænar en einnig vegna þess að litirnir á pakkningunum myndu ekki passa inn á vel skreytta heimili hipsterins. En hvernig myndu vörurnar líta út ef þær fengu „hipster makeover“?
Dan Meth, listamaður frá Bandaríkjunum, ákvað að breyta útliti pakkninga af vinsælum „ruslmat“ (e. Junk Food) og láta vörurnar líta út fyrir að verea mjög fínn sælkeramatur.
Skoðaðu myndirnar hér fyrir neðan og segðu okkur hvað þér finnst um pakkningarnar eftir að þeim er breytt. Myndir þú frekar kaupa vöruna í hipster pakkningunum?






