fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Viltu vinna bók? – Taggaðu vin og þið getið báðar/báðir/bæði unnið

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. júlí 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið er farið í frí frá Íslandi, en það þýðir ekki að það sé ástæða til að láta góðar (sumar)bækur fram hjá sér fara.
Í samstarfi við Forlagið gefum við 2 bækur, Líkblómið og Hvert andartak enn á lífi.
Skrifaðu athugasemd hér fyrir neðan hvora bókina þig langar í og taggaðu vin sem þú vilt gefa hina bókina.
Þú mátt tagga eins marga vini og þú vilt, en bara einn í hverja athugasemd.
Við drögum eftir helgi.

Taugatrekkjandi sálfræðitryllir um réttlæti, hefnd og fyrirgefningu; saga sem grípur lesandann frá fyrstu málsgrein. Líkblómið er eftir danska blaðamanninn og rithöfundinn Anne Mette Hancock og er þýdd af Nönnu B. Þórsdóttur.

Heloise Kaldan upplifir martröð blaðamannsins: Heimildirnar sem hún hafði fyrir stóra skúbbinu sínu reynast falsaðar og allt er í uppnámi – í vinnunni jafnt sem einkalífinu. Og einmitt þá taka henni að berast bréf frá Önnu Kiel, sem er eftirlýst fyrir morð á ungum lögfræðingi. Heloise fer að grafast fyrir um málið – og þá er framið annað morð. Er Anna Kiel aftur komin á kreik eða eru morðingjarnir tveir? Hvernig tengjast málin Heloise – og er líf hennar sjálfrar í hættu?

Líkblómið er fyrsta bók Anne Mette Hancock, sagnfræðings og blaðamanns, og hefur hlotið mjög góðar viðtökur.

Fyrrum íshokkíspilarinn Tom Malmquist vakti fyrst athygli í heimalandi sínu Svíþjóð sem skáld þegar hann gaf fyrstu ljóðabók, Bráðabani (Sudden Death) árið 2007. Bókinni var hampað af sænsku pressunni sem fyrsta íþrótta-ljóðabókin og skömmu síðar fylgdi önnur ljóðabók, Fadersmjölken (Paternal milk) sem ekki fékk síðari viðtökur.

Hvert andartak enn á lífi er fyrsta skáldsaga Tom. Hún byggir á sönnum atburðum í lífi hans þegar hann missti bæði konu sína og föður með stuttu millibili, en eiginkona hans var greind með hvítblæði aðeins nokkrum vikum áður en þau eignuðust sitt fyrsta barn. Hér er á ferð ógleymanleg saga um árið þegar allt breyttist, saga um missi og djúpa sorg, ástina, lífið og dauðann.

Karin og Tom eiga von á fyrsta barni sínu þegar Karin veikist skyndilega og er flutt í snarhasti á sjúkrahús. Barnið er tekið með bráðakeisaraskurði og Tom upplifir ólýsanlega martröð á hlaupum sínum um gangana á milli vökudeildarinnar og gjörgæslunnar; á milli lífs og dauða.

Þegar hann snýr heim er hann einn – með litlu dóttur sinni og sárri sorginni. Og fáeinum mánuðum síðar missir hann föður sinn, sem hann hefur alltaf átt flókið samband við.

Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016, hlaut bókmenntaverðlaun Karin Boye og menningarverðlaun DN. Spænska blaðið El País útnefndi hana eina af bestu bókum áratugarins um líf og dauða.

Davíð Stefánsson þýddi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona