

Páll Óskar Hjálmtýsson mun fara hlutverk Franks-N-Furter í uppsetningu Borgarleikhússins á söngleiknum The Rocky Horror Show. Stefnt er að frumsýningu í mars 2018 en Páll Óskar fór einnig með hlutverk kynóða vísindamannsins í uppfærslu leikfélags MH á verkinu árið 1991.
Söngleikurinn The Rocky Horror Show var frumsýndur í London árið 1973 en í kjölfarið fylgdi kvikmyndin The Rocky Horror Picture Show. Þrátt fyrir að rúm 40 ár séu liðin frá frumsýningu er ekkert lát á vinsældum verksins. Reglulega er myndin sýnd í kvikmyndahúsum víða um heim þar sem dyggir aðdáendur mæta aftur og aftur í gervi persónanna og syngja hástöfum með.
Uppfærsla Borgarleikhússins mun verða sú þriðja í atvinnuleikhúsi hér á landi, en það var sett upp í Loftkastalanum árið 1995 þar sem Baltasar Kormákur fór með leikstjórn og Helgi Björnsson söngvari fór með hlutverk Frank-N-Furter. Þá var verkið flutt hjá Leikfélagið Akureyrar árið 2010 auk þess sem það hefur verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga undanfarin ár.
„Hlakka til að fá að hitta Frank’n’Furter aftur,“ ritar Páll Óskar á Facebook-síðu sína en hann staðfesti fregnirnar einnig í viðtali við Poppland á Rás 2 í gær og sagðist brenna í skinninu fyrir hlutverkinu sem hann lék síðast fyrir 27 árum.
Verkið þótti fara vel yfir öll velsæmismörk þegar það var frumsýnt á áttunda áratugnum en Páll segir það eiga mikið erindi við samtímann.
„Það sem gerir mig spenntan fyrir þessu hlutverki er að meðan valdamestu menn heims eru að ala á ótta gagnvart minnihlutahópum þá á Rocky Horror erindi. Sýningin er alltumlykjandi verk sem býður utangarðsfólkið svo hjartanlega velkomið.“