fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Fókus

Slasaðist illa eftir fall af þriðju hæð í fjölbýlishúsi

Var að hjálpa vinkonu sinni sem var læst úti

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 5. október 2016 11:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á þrítugsaldri féll niður af svölum á þriðju hæð í fjölbýlishúsi á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Hann slasaðist töluvert, enda fallið hátt, og var í framhaldinu fluttur á slysadeild.

RÚV greindi fyrst frá. Þar segir að maðurinn hafi ætlað að koma vinkonu sinni, sem var læst úti og býr á þriðju hæð, til aðstoðar.

Hann klifraði ofan af svölum á fjórðu hæð, niður á þá þriðju til að opna svaladyrnar. Klifrið fór ekki betur en svo að hann missti takið og féll niður á lóðina.

Samkvæmt lögreglunni á Akureyri var maðurinn fluttur á sjúkrahús með lærbeinsbrot og mögulega fleiri beinbrot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslensk snorklferð valin besta upplifun í heimi

Íslensk snorklferð valin besta upplifun í heimi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir
Fókus
Fyrir 6 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 1 viku

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 1 viku

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“