

„Ég held ég hafi prófað allt sko og það byrjar mjög snemma, þegar ég er 16 ára. Síðan fer ég bara svolítið að trappa mig niður úr því, reyni að halda mig bara við áfengi og var alltaf í barningi með þetta, án vera ekki að nota örvandi efni með áfenginu. Sem kom yfirleitt alltaf, maður byrjaði að drekka og varð alltof fullur og þá þurfti að nota örvandi efni. Ég hef verið mjög fljótur að reyna að hætta og stoppa. Það var alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta. Einhver samviska innra með mér sem fannst eins og þetta væri ekki fyrir mig, en samt svona stjórnleysi í þessu líka,“
segir Bjarki Þór Pálsson atvinnumaður í MMA í viðtali í Fullorðins. Bjarki Þór hefur unnið allnokkur verðlaun sem slíkur en hann stofnaði Reykjavík MMA. Í viðtalinu segir hann frá æskunni, lífinu hingað til og þeim áskorunum sem hann hefur þurft að takast á við.
Aðspurður um hvort að það sé alkóhólismi í fjölskyldu hans svarar Bjarki Þór játandi.
„Ég var mjög fljótur að þróa með mér neyslu. Þetta var samt alltaf bara helgardæmi, en helgarnar voru farnar að lengjast, byrjaðar að vera á fimmtudegi og enda á sunnudagskvöldi. Maður var fljótur að þróa með sér þessa fíkn.“
Bjarki Þór fór að mæta á AA fundi og varð edrú í fyrsta sinn 21 árs. Hann segist þó ekki hafa verið tilbúinn og aðeins mætt á fundi þegar vinur hans var að fara.
„Ég næ einhverjum átta mánuðum, síðan dett ég í það aftur. Þá upplifi ég þetta stjórnleysi og skildi þetta miklu betur eftir að ég datt í það og vaknaði daginn eftir. Þá var þetta mikið skýrara fyrir mér.“
Bjarki Þór hugsaði þá að hann ætlaði að halda áfram að vera edrú, en við tóku sex mánuðir af stjórnleysi.