fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

„Krakkarnir sýndu veiðimennskunni mikinn áhuga“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 24. apríl 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr þáttur af Veiðin með Gunnari Bender er nú aðgengilegur hér fyrir neðan. Í þættinum fylgjumst við með veiðimönnum framtíðarinnar í árlegri dorgveiðikeppni við Hafnarfjarðarhöfn. Gunnar heimsækir einnig Ágúst Morthens sem var með verslunina Veiðisport á Selfossi um árabil. 

„Stelpur eruð þið búnar að veiða eitthvað?“ Svarið er einróma nei, ekkert hefur sést til fiska.

„Ég sá eitthvað bleikt þarna,“ segir ungur maður.

„Krakkarnir sýndu veiðimennskunni mikinn áhuga.“ Gleðin leynir sér ekki þegar fiskarnir fara að bíta á.

Þessi ungi veiðimaður landaði fyrsta fiskinum.

video
play-sharp-fill

Ágúst rak Veiðisport í 31 ár. Í samtali við Gunnar rekur hann nokkrar skemmtisögur frá löngum verslunar- og veiðiferli.

„Hann var tæp 10 pund, það var sá stærsti sem ég fékk,“ segir Ágúst um urriðann. Langavatn segir hann besta veiðivatnið.

Ágúst Morthens

Þættirnir eru unnir í samstarfi við Veiðar.is sem er nýr frétta- og upplýsingavefur um sport- og laxveiðar í íslenskri náttúru. Á vefnum eru nýjustu fréttir úr veiðinni og því sem þar gerist á hverjum tíma, auk viðtala og frásagna af veiðiferðum, reynslu og upplifun einstaklinga og hópa í veiðimennsku.

Gunnar Bender ritstjóri er annálaður áhugamaður um stangveiðar í ám og vötnum sem og auðvitað hafi, og er með áratuga reynslu af sportveiði og veiðimennsku. Gunnar hefur ferðast um landið árið um kring og hitt sportveiðifólk og aðra áhugasama um veiðar og útivist.

Í þessum ferðum sínum dreifir Gunnar meðal annars Sportveiðiblaðinu, einu mest lesna og virtasta tímariti um laxveiðar á Íslandi en Gunnar stofnaði til útgáfunnar fyrir 40 árum og hefur verið þar ritstjóri og útgefandi síðan.

Veiðiþætti Gunnars þekkja margir en hann hefur framleitt slíka þætti um veiðar í villtri náttúru Íslands og frá helstu laxveiðiám landsins. Nokkrir af veiðiþáttum Gunnars eru aðgengilegir á veidar.is og á YouTube rásinni Veiðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala
Hide picture