fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fókus

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag

Fókus
Föstudaginn 24. apríl 2026 09:30

Jack Nicholson í einu af sínu eftirminnilegasta hlutverki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóttir Hollywood-leikarans Jack Nicholson, Lorraine Nicholson, gaf aðdáendum sjaldséða innsýn í líf föður síns í tilefni af 89 ára afmæli hans á miðvikudag.

Lorraine, sem er 36 ára og starfar einnig sem leikkona, birti mynd af föður sínum á Instagram þar sem hann fagnaði afmælinu í faðmi fjölskyldu og vina, en meðal gesta var kanadíska söngkonan Joni Mitchell sem er orðin 82 ára.

Á myndinni sést Nicholson brosa sínu einkennandi brosi á meðan hann klappar í takt við tónlist ásamt Mitchell og öðrum viðstöddum.

Samhliða birti hún einnig eldri mynd af föður sínum frá áttunda áratugnum, þar sem hann klæðist rauðum Coca-Cola bol og reykir vindil – mynd sem hefur vakið athygli aðdáenda.

Jack hefur ekki látið mikið fyrir sér fara í Hollywood á síðustu árum og að mestu haldið sig utan sviðsljóssins. Síðasta kvikmyndahlutverk hans var í rómantísku gamanmyndinni How Do You Know árið 2010.

Lorraine hefur þó af og til deilt myndum af föður sínum. Í desember 2025 birti hún mynd af honum ásamt sér og bróður sínum Ray á veitingastað, sem var þá fyrsta myndin sem birtist af leikaranum í nærri ár.

Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla líður Nicholson vel og nýtur þess að vera fjarri Hollywood. „Hann er hamingjusamur og nýtur þess að eyða tíma með fjölskyldunni,“ sagði heimildarmaður á sínum tíma og bætti við að hann væri mjög náinn börnum sínum.

Leikarinn hefur aðeins látið sjá sig opinberlega við örfá tækifæri á undanförnum árum. Hann sást meðal annars í áhorfendasalnum þegar Saturday Night Live-gamanþættirnir fögnuðu 50 ára afmæli sínu í fyrra.

Vinur hans til margra ára, leikarinn Danny DeVito, sagði í viðtali á síðasta ári að Nicholson væri við góða heilsu. „Ég hitti Jack fyrir nokkrum vikum og hann er í frábæru formi,“ sagði DeVito og virðist myndin af leikaranum staðfesta það.

Jack Nicholson er einn þekktasti leikari Bandaríkjanna en hann vann sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir aðalhlutverkið í myndinni One Flew Over The Cuckoo’s Nest. Þá vann hann Óskarinn fyrir aukahlutverk í myndinni Terms of Endearment og svo fyrir aðalhlutverkið í myndinni As Good as it Gets. Þá á hann að baki eftirminnileg hlutverk í myndum eins og The Shining.

Leikarinn virðist vera í fínu formi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 1 viku

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“