fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fókus

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“

Fókus
Sunnudaginn 26. apríl 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta urðu bálreiðir þegar þeir lásu færslu frá leikaranum Ben Stiller á samfélagsmiðlum í gær.

Þar skrifaði leikarinn: „Kláraði þetta“ sem eins má lesa sem „kláruðum þetta“ (e. got it done).

Töldu stuðningsmenn forsetans, MAGA-liðar, að þarna væri leikarinn að vísa til skotárásar sem átti sér stað á hátíðarkvöldverði fréttaritara á Hilton-hótelinu í Washington.

Þingmaður Repúblikana, Nancy Mace, svaraði leikaranum og spurði: Kláraði hvað?

Fyrrum yfirmaður Kennedy Center, Richard Grenell, sagði: Hvað í fjandanum?

Aðrir MAGA-liðar létu í sér heyra.

„Sorrí Ben, en gaurinn þinn hitti ekki. Ég vildi óska að þín hlið myndi hætta að reyna að myrða fólkið sem þið eruð ósammála.“

„Tímasetningin á þessari færslu er frekar galin“

Fylgjendur leikarans reyndu þá að benda reiðum MAGA-liðum á að leikarinn hafi ekki verið að vísa til skotárásarinnar. Það væri augljóst af öðrum færslum sem leikarinn hafði birt þetta sama kvöld, en hann var að horfa á körfuboltaleik með uppáhaldsliði sínu, Knicks, sem sigruðu leik sinn við Hawks í gærkvöldi.

„MAGA-liðar eru svo vitlausir að þeir átta sig ekki á því að þú ert að tala um Knicks-leikinn,“ skrifaði einn og annar bætti við: „Ég held að kannski sé það fólkið hér í athugasemdum, sem veit ekki að færslan er um körfubolta, sem glímir við Trump-sturlun [e. Trump Derangement Syndrome].

Líklega hafa MAGA-liðar dregið of víðtækar ályktanir af færslunni þar sem Ben Stiller hefur ekki leynt því að hann er enginn aðdáandi forsetans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala