fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Dagur í lífí Eyþórs Arnalds

– líkamsrækt, lágkolvetnafæði og lestur fróðlegra fagbókmennta

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 26. janúar 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyþór Arnalds fæddist þann 24. nóvember árið 1964 í Reykjavík. Hann er sonur þeirra Sigríðar Eyþórsdóttur, kennara, leikstjóra og stofnanda leikhópsins Perlunnar, og Jóns L. Arnalds, f.v. borgardómara og ráðuneytisstjóra í Reykjavík. Eyþór ólst að mestu upp í Árbænum ásamt systur sinni Bergljótu Arnalds og naut þess m.a. í uppeldinu að móðuramma hans og afi bjuggu ætíð í sömu blokk. Eyþór hefur löngum verið listhneigður. Ellefu ára sló hann í gegn sem Kalli á þakinu í samnefndu verki og nokkrum árum síðar varð hann enn þekktari þar sem hann kom fram með hljómsveitinni Tappi Tíkarrass ásamt Björk Guðmundsdóttur. Eyþór lauk tónsmíðanámi hjá Louise Andriessen í Hollandi og MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík en jafnframt lagt stund á hagfræðitengt stjórnendanám við Harvard-háskóla. Eyþór hefur löngum haft gaman af hvers konar viðskiptum. Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki um tvítugt en hefur á liðnum árum aðallega einbeitt sér að stjórnun og rekstri fyrirtækja í iðnaði og ferðaþjónustu. Eyþór, sem býr í Vesturbænum, er kvæntur Dagmar Unu Ólafsdóttur jógakennara og saman eiga þau synina Jón Starkað, 10 ára, og Þjóðrek Hrafn, 8 ára.

07.00

Dagurinn hefst á því að ég fæ mér staðgóðan morgunverð. Ég spæli mér egg, helli upp á kaffi og sest svo niður til að lesa blöðin. Um leið hjálpa ég sonum mínum að koma sér af stað í skólann en þeir hafa verið við nám í Landakotsskóla síðustu tvö árin.

09.00

Fyrstu fundir dagsins byrja um klukkan níu og þá reyni ég oftast að hitta fólk í Sjávarklasanum þar sem ég hef góða fundaraðstöðu. Mér finnst líka gott að hitta fólk í sínu umhverfi og fer því stundum um allan bæ í þessum erindagjörðum. Þessa dagana snúast fundirnir helst um að ræða málefni borgarinnar með margvíslegum hætti, hlusta bæði á fagaðila og fólkið í borginni sem hefur frá ansi mörgu að segja.

12.00

Í hádeginu reyni ég oftast að lyfta lóðum og fer þá gjarna í World Class í Laugum. Ég lyfti sex sinnum í viku og hef gert í svona hálft ár. Ég mæti einn en maður hittir alltaf hresst fólk á þessum æfingum og þannig verður ræktin besti skemmtistaðurinn. Lyftingarnar gefa mér bæði andlega og líkamlega orku og svo styrkir þetta vöðva, bein og skap.

13.30

Ég er að reyna að venja mig á mataræði sem gengur út á að forðast hröð kolvetni og mér finnst best að borða beint eftir æfingu. Þá eitthvað gott prótein, fisk eða kjöt, en ég reyni að sleppa kartöflum og mat sem er unninn úr hveiti. Stundum fer ég heim og elda eða kem við einhvers staðar í mat. Yfirleitt borða ég hádegismatinn einn en þó kemur það fyrir að maður sameini fundi og hádegisverð þegar það er mjög mikið að gera.

16.00

Ég er með vinnuaðstöðu á þremur stöðum, eina í Ármúla, aðra í Sjávarklasanum og sú þriðja er heima hjá mér. Þangað fer ég yfirleitt þegar ég er búinn að borða og/eða í ræktinni svo að ég geti verið heima að taka á móti strákunum mínum þegar þeir eru búnir í skólanum upp úr fjögur og svo vinn ég eitthvað áfram heima.

18.00

Upp úr sex tekur eldamennskan við. Ég hef alltaf verið ágætur í matreiðslu og elda þá bæði fisk og kjötrétti en er sérlega góður í að elda pastarétti sem synir mínir eru ákaflega hrifnir af. Þá sýð ég hefðbundið hveitipasta fyrir þá en heilhveitipasta fyrir sjálfan mig.

19.00

Ég er fremur heimakær og reyni að vera sem mest heima hjá mér á kvöldin en stundum verður maður að skreppa frá. Reyndar finnst mér alltaf mjög gaman að fara á tónleika og í leikhús enda fylgdi það uppeldinu. Mamma og pabbi eru bæði mjög listhneigð og menningarlega sinnuð. Í stofunni er ég með skákborð, bækur og plötuspilara, svona til að reyna að halda í gamla raunheiminn sem er óðum að hverfa enda finnst mér sjónvörp ekki mjög aðlaðandi inni í aðalrýminu. Ég reyni yfirleitt að forðast mikið sjónvarpsgláp og les heldur bækur.

22.00

Það eru alltaf átök að sannfæra synina um að koma sér í háttinn en eftir að það tekst þá fer ég oftast að lesa, aðallega fagbókmenntir; sagnfræði, tækni og þess háttar. Upp á síðkastið hef ég haft sérstakan áhuga á því að lesa mér til um gervigreind enda er heimurinn að breytast ansi hratt og því gott að vera með á nótunum.

00.00

Yfirleitt er ég ekki sofnaður fyrr en í kringum miðnætti og finnst það heldur seint, en núna vaki ég oftast enn lengur þar sem ég er á kafi í kosningabaráttu og því ótal verkefni sem ber að höndum.

Besta ráð sem þér hefur verið gefið?

„Sá sem ræður yfir heiminum er mikill, en sá sem ræður yfir sjálfum sér er mikilmenni.“ Þetta sagði amma Bergljót alltaf og orðin hafa setið í mér. Ég tel mjög mikilvægt að kunna að hafa stjórn á skapinu, enda er reiður maður líka brjálaður maður eins og hún sagði.

Besta ráð sem þú getur gefið öðrum?

Að koma fram við aðra eins og maður vill að komið sé fram við sig. Kristur hafði lög að mæla.

Hvað vildirðu að þú hefðir vitað fyrr?

Framan af ævinni kunni ég ekki að segja nei. Tók allt of mikið að mér og færðist þannig stundum of mikið í fang. Síðari árin hef ég tamið mér að segja nei aðeins oftar, með góðum árangri, en upp á síðkastið hef ég þó sagt já aðeins oftar, – enda á kafi í kosningabaráttu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“