fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fókus

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Fókus
Föstudaginn 27. febrúar 2026 09:30

Atvikið umrætt kvöld.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikaranum Shia LaBeouf hefur verið skipað að fara í meðferð vegna vímuefnavanda og gangast reglulega undir vímuefnapróf samkvæmt úrskurði dómara í New Orleans í Bandaríkjunum í gær.

LaBeouf var handtekinn þann sautjánda þessa mánaðar eftir að hafa ráðist á tvo menn fyrir utan skemmtistað í French Quarter-hverfinu í tengslum við Mardi Gras-hátíðina í borginni.

Átökin náðust á myndband og virtist leikarinn vera í annarlegu ástandi þetta kvöld.

LaBeouf hefur verið sleppt úr haldi en samkvæmt úrskurði dómara þurfti hann að reiða fram 100 þúsund dollara tryggingu. Þá þarf hann að fara í meðferð sem fyrr segir.

Samkvæmt frásögnum bandarískra fjölmiðla mun LaBeouf hafa látið niðrandi ummæli falla inni á bar í borginni með þeim afleiðingum að starfsfólk vísaði honum út. Fyrir utan staðinn lét hann öllum illum látum og sló tvo menn, þar á meðal barþjón.

LaBeouf sjálfur var fluttur á sjúkrahús vegna ótilgreindra meiðsla áður en hann var færður í varðhald. Dómari málsins sagðist hafa áhyggjur af því að leikarinn tæki ekki vanda sinn nægilega alvarlega og nefndi sérstaklega áfengisfíkn hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans