Þetta átti að verða besti dagur lífs hennar en var eyðilagður. Hin þrítuga Jenni Pettican, áhrifavaldur sem er með Ehlers-Danlos heilkenni og vefjagigt, var búin að verja mörgum mánuðum í að undirbúa brúðkaupið sitt þegar í ljós kom að ekki var gert ráð fyrir hjólastólnum hennar.
Í viðtali við Mirror lýsir hún reynslunni þegar hún var á leiðinni upp á svið og það gleymdist að taka tillit til hjólastólsins sem hún notar vegna vefjagigtarinnar. „Það voru hundrað mannað horfa á mig. Þetta var augnablik sem gerist bara einu sinni á ævinni,“ segir hún.
Jenni og eiginmaður hennar voru búin að vera saman í sex ár þegar þau héldu brúðkaup í Essex á Englandi í maí síðastliðnum. Um morguninn hafði hún prófað að fara á hjólastólnum upp á sviðið. Starfsfólk hafði svo fært rampinn á meðan það var verið að taka til aðra hluti en það gleymdist að koma honum aftur fyrir.
„Hjartað sitt sökk. Það var búið að taka rampinn,“ segir hún. Til að létta á spennunni spurði hún gestina í gamansömum tón hvernig hún ætti að komast upp, viðbrögðin voru takmörkuð. Enginn starfsmaður var á staðnum og tók vinur hennar að sér að fá pabba hennar og svaramanninn til að sækja rampinn. „Þeir sneru honum vitlaust, það gekk ekki. Ef ég hefði dottið þá hefði ég farið í mál við staðinn.“
Dagurinn var góður eftir að þau voru gefin saman, það var ekki fyrr en seinna að það rann upp fyrir henni hvað þetta augnablik var henni hræðilegt, hún hafi verið niðurlægð. „Þetta skemmdi daginn fyrir mér. Það eru fallegar myndir af okkur en það eina sem ég get hugsað um er rampurinn.“