Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir að fíknivandi snerti allar fjölskyldur á Íslandi og það sé ofboðslega dýrt þegar menn séu úr leik.
Líkt og DV greindi frá í gær hefur Samherji stofnað átakssjóð sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í fjárfestingum hjá þeim sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fólk með fíknisjúkdóma á Íslandi. Samherji ætlar að leggja fram 20 milljónir á ári á næstu fimm árum, alls 100 milljónir króna. Er leitast eftir stuðningi atvinnulífsins til að hægt sé að úthluta 300 milljónum til átaksverkefna.
Baldvin sagði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun að fíknivandi snerti allar fjölskyldur, þar á meðal sína:
„Við vorum tala um það áðan fyrir þáttinn að þetta snertir allar fjölskyldur. Mína fjölskyldu. Sjálfsagt ykkar fjölskyldu. Allra. Flest fyrirtæki í landinu,“ sagði Baldvin.
Hann segir að það séu mörg málefni sem hægt sé að styrkja en málefni fíknisjúkdóma hafi verið í brennidepli.
„Ég skal ekki segja víða pottur brotinn en klárlega tækifæri til að gera betur. Þetta er dýrt. Rosalega dýrt fyrir alla þegar menn eru í fíkn. Fá ekki þá aðstoð sem þeir þurfa. Það eru biðlistar í þessu kerfi því miður og vonandi verður þetta átak til þess að gera aðgengið betra,“ sagði Baldvin.
„Það er ofboðslega dýrt þegar menn eru úr leik. Ekki bara einn úr leik, það eru margir úr leik. Þetta hefur áhrif inn í fjölskyldur. Menn eru með ung börn jafnvel og þegar menn eru að glíma við þennan sjúkdóm þá eru menn ekki á fullu. Fullur þáttakandi í þjóðfélaginu. Ekki í fjölskyldunni. Ekki vinahópnum. Og það er bara ofboðslega dýrt.