Fókus

Guðni Th. var ekki á Þingvöllum heldur öðrum tónleikum á áhugaverðum stað – Sjáðu myndbandið

Mynd
Guðna Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands.

Svo virðist sem allir og amma þeirra hafi verið á BERGMÁL-tónleikunum á Þingvöllum um helgina, það á þó ekki við um Guðna Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseta Íslands, sem var á öðrum tónleikum á þeim tíma á ekki síður áhugaverðum stað.

„Á Þingvöllum voru fínustu tónleikar en þeir voru ekki síðri á Ísafirði. Tónlistarhátíð Við Djúpið er haldin hvert sumar og naut ég hennar undanfarna daga samhliða störfum á Hrafnseyri við Arnarfjörð, þeim fallega fæðingarstað Jóns forseta sem ég hvet Íslendinga til að heimsækja,“ segir Guðni Th. á Facebook.

 „Margs annars má njóta á Vestfjörðum. Uppi á Bolafjalli nutu listamenn sem komu fram á tónlistarhátíðinni lengsta dags ársins, vel eftir miðnætti. Þetta er fallegt land, Ísland.“

Birtir hann svo skemmtilegt myndband: