

Áhrifavaldurinn Ashley St. Clair hefur ákveðið að láta allt fjúka um ástarsamband hennar og ríkasta manns heims, Elon Musk, en þau eiga saman soninn Romulus, en játningar áhrifavaldsins hafa vakið gríðarlega athygli þar sem hún heldur því meðal annars fram að Musk hafi átti við kosningakerfið í Bandaríkjunum til að tryggja það að Donald Trump yrði forseti.
Að sögn áhrifavaldsins kynntist hún ríkasta manni heims þegar hún var að starfa sem áhrifavaldur fyrir MAGA-hreyfinguna. Hún var þá aðeins 23 ára gömul og hafi heillast af Musk.
„Á þessum tíma í lífi mínu, því ég var að taka þátt í MAGA-hreyfingunni og hægrinu og var þegar orðin einstæð móðir, taldi ég að hjónaband, hvíta girðingin og hvíti kjóllinn væru úr sögunni fyrir mig því ég var „flekkuð“. En mig langaði ekkert heitar en að vera móðir. Mig langaði í fleiri börn.“
Ashley hafi hikað við frekari barneignir þar sem hún taldi sig ekki hafa efni á því en Musk endaði með að tala hana til, hvetja hana áfram og lofa að sjá fyrir henni og börnum hennar.
Fljótlega eftir að Ashley varð þunguð fór samband hennar og Musk að súrna.
„Um leið og ég varð ólétt þá fóru hlutirnir að verða skrítnir,“ sagði áhrifavaldurinn sem lýsir því að hún og Musk hafi átt í raunverulegu ástarsambandi en eftir að hún varð ólétt fór sambandið að taka á sig formlegri blæ. Meðal annars hafi Musk reynt að fá hana til að skrifa undir samkomulag með ýmsum skilmálum á borð við að hún þyrfti að gangast undir keisaraskurð svo heili barnsins yrði stærri og að ef um dreng væri að ræða mætti ekki umskera hann. Ashley er gyðingur og tók þetta því ekki í mál. Sonur hennar fæddist náttúrulega og var umskorinn í samræmi við trú hennar.
Musk krafðist þess eins að nafn hans kæmi ekki fram á fæðingarvottorði. Áhrifavaldnum fannst þetta allt frekar óþægilegt. Hún vildi ekki að sonur þeirra myndi upplifa sig sem leyndarmál.
Hún heldur því einnig fram að Musk hafi haft aðgang að rauntímagögnum um kosningarnar í forsetakosningunum 2024. Hann hafi deilt gögnum með henni sem hún telur ljóst að hvorki hún né hann hafi haft heimild til að sjá. Eins heldur hún því fram að Musk hafi sent henni skilaboð á kjördegi þar sem hann fullyrti að Trump myndi vinna þar sem teymi hans hefði „bestu rauntímagögnin“. Ashley segir að þetta hafi kveikt á viðvörunarbjöllunni hjá henni enda gat hún ekki skilið hvernig nokkur gæti vitað niðurstöðu kosninga áður en fyrstu tölur höfðu verið tilkynntar.
Heimildarmenn úr búðum Musks segja í samtali við TMZ að Ashley sé bara að bulla. Hún hafi eins haldið því fram að Musk sé búinn að koma fyrir lasergeislum í geimnum, en þar sé hún að misskilja myndlíkingu sem auðkýfingurinn gerði á þeim tíma sem þau voru saman. Musk og Ashley eiga í harðvígri forsjárdeilu vegna sonar þeirra, en Musk fór fram á fulla forsjá drengsins eftir að Ashley lýsti yfir stuðningi við trans fólk og baðst afsökunar á neikvæðum ummælum sínum í garð trans samfélagsins í gegnum tíðina.