
Óhætt er að segja að mikið hafi verið lagt á Heiðdísi Rósu Sigurjónsdóttur þriggja barna móður á fertugsaldri, sem búsett er á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni, undanfarna mánuði. Heiðdís Rósa hefur verið í meðferð vegna heilaæxlis en á sama tíma hefur sonur hennar verið að jafna sig eftir erfiða og viðamikla skurðaðgerð og eiginmaður hennar, Óðinn Svan Óðinsson verið í kosningabaráttu. Óðinn er oddviti L-listans í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri. Segir Heiðdís það hafa verið erfitt að upplifa það með framboði Óðins hversu óvægin og persónuleg umræðan getur verið í garð þeirra sem taka þátt í stjórnmálum. Hún fer heldur ekkert í grafgötur með það að henni finnist það virkilega ósanngjarnt að verða svo alvarlega veik svona ung en reynir sitt besta til að halda í jákvæðina. Heiðdís er þakklát fyrir það sem hún hefur og hvetur aðra til að líta þannig á lífið og vera ekki að eyða orkunni í að níða aðra.
Heiðdís Rósa segir sögu sína í einlægum Facebook-pistli sem hún veitti DV góðfúslegt leyfi til að fjalla um.
Pistilinn ritaði Heiðdís Rósa í gær en þá voru liðnir sjö mánuðir síðan hún og Óðinn voru boðuð saman til læknis og fengu þær „ömurlegu“ fréttir að hún væri með heilaæxli. Hún fer ekki í grafgötur með að hún sé ósátt við að lífið hafi leikið hana svona hart:
„Að skrifa þetta niður eða segja þetta upphátt finnst mér enn 7 mánuðum seinna óraunverulegt. Finnst lífið bara ömurlega ósanngjarnt og mér finnst að það ætti ekki að vera leyfilegt að vera aðeins 35 ára ung móðir og eiginkona í blóma lífsins og þurfa að standa í þessu erfiða verkefni og því miður á ég of marga vini sem að eru að ganga í gegnum svipaða erfiðleika sem gerir mig enn sárari og reiða út í lífið.“
Heiðdís Rósa segir það ótrúlegt hvað tíminn hafi liðið bæði hægt og hratt síðan hún fékk greininguna. Lífið síðan þá hafi verið erfitt en líka gott:
„Þessir 7 mánuðir hafa bæði verið hræðilega erfiðir en á sama tíma dásamlegir þar sem að þessi reynsla kennir manni að horfa inn á við, einskonar sjálfsskoðun og læra njóta og meta það sem maður á og hefur. Það er einmitt það sem að ég hef gert, ég er svo ótrúlega þakklát fyrir börnin mín þrjú og sérstaklega fyrir Óðinn minn sem er einn sterkasti og besti maður sem er til. Það er nefninlega ekki auðvelt að ganga í gegnum raunir sem þessar, þ.e. heilaskurðaðgerð, geislameðferð og núna er ég í miðri lyfjameðferð.“

Heiðdís Rósa hefur þó ekki verið sú eina í fjölskyldunni sem hefur þurft að glíma við erfiðan heilsufarsvanda en sonur hennar og Óðins sem er á táningsaldri þurfti að gangast í lok síðasta árs undir svokallaða hryggspengingu þar sem hann fékk 34 nagla í bakið og var spengdur frá spjaldhrygg upp að efstu hálsliðum:
„Lífinu fannst þetta ekki nógu miklar raunir fyrir okkur og því miður fékk hann sýkingu í skurðinn og þurfti að fara aftur í aðgerð í lok janúar. Endurhæfingin gengur hægt og rólega en það tekur eitt ár að jafna sig og ná fullum kröftum eftir aðgerð sem þessa.“

Hún segir drenginn hins vegar standa sig með prýði. Hann hafi nýlokið 3 mánaða sýklalyfjaskammti og sé mjög jákvæður og ýti sér áfram í gegnum verki og erfiðleika ásamt því að vera á 1. ári í menntaskóla:
„Sem er ekkert grín en hann er nagli sem fer áfram á þrautsegju.“
Eiginmaður Heiðdísar Rósu er eins og áður segir Óðinn Svan Óðinsson sem er landsþekktur fyrir störf sín á RÚV en hann sagði starfi sínu þar lausu og bauð sig fram sem oddviti L-listans í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri.
Heiðdís Rósa segist strax við greininguna á heilaæxlinu hafa ákveðið að takast á við þetta verkefni með jákvæðni að leiðarljósi. Það hafi hins vegar reynst erfitt að halda í jákvæðnina eftir því sem liðið hafi á meðferðina og sérstaklega eftir að erfiðasti hlutinn, lyfjameðferðin, byrjaði. Hún reyni samt að halda í jákvæðnina og þar skipti stuðningur Óðins miklu máli:
„Ég reyni samt að vera jákvæð alla daga en það er erfitt þegar líkamleg vanlíðan yfirtekur líkamann og þá hellast alls konar tilfinningar og hræðsla yfir mann. Þegar þetta hellist yfir mig þá er ég þakklátust í heimi fyrir Óðinn minn. Ég hefði ekki geta beðið um traustari, sterkari og jákvæðari maka. Óðinn á endalaust lof skilið fyrir dugnað, það eru ekki margir sem þora að hætta í vinnunni sinni til þess að prófa eitthvað algjörlega nýtt og hvað þá á meðan mestu erfiðleikar lífs þíns ganga yfir. Óðinn er raunsær og klárar þá hluti sem að hann tekur sér fyrir hendur og gerir það vel. Hann var búinn að ákveða að breyta til og stóð við það eins og honum einum er lagið – hann er samkvæmur sjálfum sér – ég að sjálfsögðu hvatti hann áfram í þessu.“

Heiðdís Rósa segir að það geti vel verið að einhverjir telji skrif hennar klisukjennd í miðri kosningabaráttu en viðkomandi verði þá hreinlega að eiga það við sig sjálfa. Hún segir það erfitt að upplifa í gegnum framboð Óðins hversu óvægin og persónuleg hin pólitíska umræða geti verið:
„Mín heitasta ósk (undirstrikað þá er það mín ósk og skoðun en ekki eitthvað sem að Óðinn veltir fyrir sér) er sú að fólk sýni aðgát í nærveru sálar og hugsi sig aðeins um áður en það skrifar á netið eða lætur ummæli um aðra falla. Það eiga allir fjölskyldu og fólk er misjafnlega í stakk búið til að taka á móti ljótum ummælum. Það er ótrúlegt að þó að einhver bjóði sig fram til sveitastjórnar eða Alþingis þá ætti það ekki að vera samasemmerki um að það megi níðast á því fólki? Síðan hvenær varð það að ásættanlegri hegðun?“
Að lokum er Heiðdís Rósa með skilaboð sem flestir ættu að geta tekið undir:
„Ást til ykkar allra og verið góð við hvort annað, njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið, plís eyðið orkunni ykkar í að vökva ykkar garð í stað þess að reyna rífa aðra niður. LÍFIÐ ER NÚNA!“