

Glæsilegt heilsárshús við Flekkudalsveg í Kjós er komið í sölu. Húsið fellur fallega inn í landslagið með dökkri og fágaðri ásýnd og náttúrufegurðin er allt um kring. Stórir gluggar ramma inn útsýnið yfir vatnið og fjallahringinn.

Húsið er byggt árið 1992 og er 117,9 fm.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í alrými með mikilli lofthæð, fallegri viðaráferð og innfelldri lýsingu.

Eldhúsið er með stórri eyju og steináferð sem nýtur sín vel í rýminu, ásamt góðu vinnuplássi.

Frá alrýminu er útgengt út á rúmgóða verönd þar sem er heitur pottur og aðstaða til útiveru, auk þess sem stærra baðherbergið hefur einnig útgengi út á verönd. Sauna með útsýni yfir vatnið setur sérstakan svip á eignina.

Að auki er sér rými með baðherbergi sem nýtist afar vel sem gestaaðstaða.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
