fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Besta deildin: Valur sótti sterkan sigur í Garðabæ – Breiðablik og Víkingur með öfluga sigra

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 21:09

Elías Már er sjóðheitur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var mikið um mörk og skemmtun í þremur leikjum 4. umferðar Bestu deildar karla í kvöld þar sem Víkingur Reykjavík, Valur og Breiðablik unnu sannfærandi sigra.

Á Víkingsvelli fór Víkingur illa með ÍA og vann 4-0 stórsigur. Eftir markalausan fyrri hálfleik braut Elías Már Ómarsson ísinn á 55. mínútu. Valdimar Þór Ingimundarson bætti við öðru marki skömmu síðar, Viktor Örlygur Andrason skoraði þriðja markið á 85. mínútu og Elías Már innsiglaði sigurinn með sínu öðru marki undir lok leiks.

Í Garðabæ hafði Valur betur gegn Stjarnan í fjörugum leik, 4-2. Lúkas Logi Heimisson kom Val yfir snemma, en Andri Rúnar Bjarnason jafnaði tvívegis fyrir Stjörnuna. Tryggvi Hrafn Haraldsson svaraði þó í bæði skiptin fyrir Val og skoraði tvö mörk fyrir gestina áður en Bjarni Mark Antonsson gulltryggði sigurinn á 89. mínútu.

Í Kópavogi vann Breiðablik öruggan 4-0 sigur á Þór. Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum yfir í fyrri hálfleik, Anton Logi Lúðvíksson tvöfaldaði forskotið eftir klukkutíma leik og Davíð Ingvarsson bætti við þriðja markinu seint í leiknum. Það var svo á 94. mínútu sem Óli Valur Ómarsson kórónaði góðan sigur Breiðabliks.

Þessi úrslit þétta toppbaráttuna enn frekar eftir fjórar umferðir. Víkingur er með tíu stig, Valur 9 stig og Breiðablik átta stig. KR er á toppum með tólf stig

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum