fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er smá sprengja í pakkanum því Sólstrandargæjarnir verða á Bræðslunni í sumar,” segir Jónas Sigurðsson, annar stofnenda Sólstrandargæjanna, í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur. Hljómsveitin Sólstrandargæjarnir sló í gegn með laginu Rangur maður árið 1995 en hefur ekki komið saman í 25 ár.

Jónas, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár með lögum eins og Hamingjan er hér og Hafið er svart, stofnaði Sólstrandagæjana ásamt Unnsteini Guðjónssyni. Þeir voru þá báðir í menntaskóla.

Jónas tjáði sig um þennan skrautlega tíma, árin 1995-1996, sem hljómsveitin var starfandi og sínar tilfinningar gagnvart honum. Á meðan margir muna eftir Sólstrandargæjunum sem léttum og skemmtilegum þá eru minningar Jónasar ekki eins jákvæðar. Spilamennskunni fylgdi mikill kvíði og Jónas var ekki alltaf viss um að hann væri á réttri hillu sem söngvari og gítarleikari í popphljómsveit.

Eftir mikla keyrslu í tæp tvö ár hætti hljómsveitin árið 1996. Á þeim tíma gáfu þeir út þrjár plötur sem voru hver annarri skrautlegri að sögn Jónasar. „Hvert lag með Sólstrandargæjunum var meira rugl en það fyrra,” segir hann.

Sólstrandargæjarnir endurvaktir árið 2001

Jónas sneri sér að öðrum hlutum en fimm árum síðar var ákveðið að endurvekja Sólstrandargæjana með það að markmiði að reyna að gera hlutina betur en áður. „Ég held að bæði mér og Umma hafi alltaf liðið eins og þetta hafi verið einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu. Og við einhvern veginn enduðum með að kúka á okkur og fara af vellinum,” rifjar Jónas upp en í tengslum við þessa endurkomu kom út fjórða og síðasta plata hljómsveitarinnar.

Eftir að Jónas kom svo fram á sjónarsviðið með sinn tónlistarferil eftir Sólstrandargæjanna fékk hann oft þá spurningu af hverju hann spilaði aldrei lög hljómsveitarinnar á tónleikum.

„Ég get sagt alveg heiðarlega að það eru alveg tíu, fimmtán ár af mínu lífi þar sem ég var mjög ófrjáls fyrir þessu,” segir Jónas sem hefur átt mörg vinsæl lög undanfarin ár undir nafninu Jónas Sig og þá ýmist með Ritvélum framtíðarinnar eða Milda hjartanu.

Rangur maður lifir enn góðu lífi

En svo kom að því að hann ákvað að láta slag standa og spila lagið Rangur maður á tónleikum enda lifir lagið enn góðu lífi í dag. Það var einmitt á Bræðslunni árið 2013 þegar Jónas spilaði lagið sem lokalag á sínum tónleikum og það skipti hann miklu máli að geta loksins gert það.

Síðan þá hafa þeir félagar oft fengið fyrirspurnir varðandi það að koma saman aftur sem Sólstrandargæjarnir en hafa hingað til ekki sýnt því áhuga. Einn af þeim sem hafa verið aðgangsharðastir í þessum fyrirspurnum er Magni Ásgeirsson, einn af forsvarsmönnum Bræðslunnar.

„Hann hefur aldrei látið deigan síga og ég alltaf bara: Nei, nei. Takk að spyrja en nei,” segir Jónas. „Svo heyrði hann í mér um daginn og allt í einu fékk ég svona tilfinningu. Já, ef við náum saman gamla hópnum þá er ég til,” bætir hann við. Og nú er það svo að allt gamla gengið kemur saman á ný til að spila eina tónleika á Bræðslunni.

Jónas fór ítarlega yfir sögu Sólstrandargæjanna í þættinum auk þess að segja frá því þegar lagið hans Hamingjan er hér sló í gegn árið 2010. Þetta er fyrsti hlutinn af þremur í viðtali Jónasar við Popparasögur. Hinir tveir hlutarnir birtast í næstu viku en þar ræðir Jónas um það hvernig honum gekk að komast aftur inn í tónlistarbransann, lögin sem hafa slegið í gegn og væntanlega plötu sem hann vinnur nú að en síðasta plata Jónasar Sig, Milda hjartað, kom út árið 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri