fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Laufey er andlit teframleiðanda

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 08:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er andlit kínverska teframleiðandans Chagee í nýrri herferð þeirra sem heitir A Sip Of Time. Samstarfið kynnir einnig nýjan drykk, Camellia Oolong Milk Tea, ásamt vörum sem eru til sölu í takmarkaðan tíma, meðal annars prjónaðar töskur og mjúkdýr.

Í herferðinni er Laufey sögð vera vinur Chagee (e. friend of Chagee) og er lögð áhersla á að tengja saman nútímalega temenningu og tónlist með því markmiði að hægja á tímanum í hraða nútímans. Hluti af herferðinni er stuttmynd sem fylgir Laufeyog hesti eftir frá Los Angeles yfir á jazz-svið og til teakranna í Yunnan. Undir hljómar tónlist Laufeyjar.

Chagee var stofnað árið 2017 og rekur um sjö þúsund sölustaði í yfir 100 löndum samkvæmt heimasíðu þess, en aðallega í Asíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“