fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fókus

Laufey heldur stórtónleika í Kórnum

Fókus
Föstudaginn 5. september 2025 14:20

Laufey Lín Jónsdóttir hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir mun enda A Matter of Time-Evróputúr sinn á Íslandi og efnir til stórtónleika í Kórnum, laugardaginn 14. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu sem er eftirfarandi:

„Laufey hefur heillað heilar kynslóðir með afar vandaðri tónlist sem fjallar um ást og sjálfsuppgötvun þar sem hún sameinar popp, djass og klassíska tónlist á einstakan hátt. Árið 2023 afrekaði hún það að verða yngsti listamaður allra tíma til að hljóta GRAMMY verðlaun í flokknum Best Traditional Pop Vocal Album fyrir plötuna Bewitched. Nú upplifir hún meira frelsi en nokkru sinni fyrr, sem tónskáld, söngkona, útsetjari og fjölhæfur hljóðfæraleikari sem gerir henni kleift að blómstra sem aldrei fyrr og “leyfa hjartanu að ráfa,” eins og hún orðar það sjálf.

Hennar þriðja plata, A Matter of Time, er nýkomin út og var gerði í samvinnu við útsetjarana Spencer Stewart og Aaron Dessner. Þar fer Laufey út fyrir þægindarammann og skapar seiðandi hljóðheim og hreinskilnar lagasmíðar sem hitta beint hjartastað. Platan markar hápunktinn á ótrúlegu ferðalagi sem hófst þegar hún spilaði á selló með Sinfóníuhljómsveit Íslands á unglingsaldri og samdi sitt fyrsta útgefna lag á meðan hún stundaði nám við Berklee College of Music.

Ferill Laufeyjar hefur verið stórbrotinn og afrek hennar hafa hrannast upp; má þar nefna yfir 4,25 milljarða spilanir á streymisveitum, 23 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum, stærstu útgáfu á djassplötu í sögu Spotify, plata á Billboard Top 20, fjöldinn allur af platínusölum, sæti á Forbes 30 Under 30 listanum og árið 2025 var hún útnefnd ein af Konum ársins (Women of the Year) af tímaritinu TIME.

Laufey hefur selt upp á tónleika í stórum tónleikahöllum á borð við Hollywood Bowl, Radio City Music Hall og Royal Albert Hall í London. Auk þess hefur hún hefur komið fram með LA Phil, National Symphony Orchestra og China Philharmonic Orchestra, deilt sviði með listamönnum á borð við Jon Batiste og Raye og tekið upp með tónlistarfólki á borð við Beabadoobee og Norah Jones.

Laufey mun gefa 150 kr. af hverjum seldum miða á þessa tónleika, til The Laufey Foundation, til að styðja ungmenna­hljómsveitir, félagasamtök og verkefni á sviði tónlistarfræðslu. Hægt er að fræðast nánar um The Laufey Foundation og styðja við starfið hér.

Almenn miðasala á tónleikana hefst 12. september klukkan 9 en forsala fer fram 10. september klukkan 9. Hægt er að skrá sig í forsölu hér. Sena Live forsala fer fram 11. september klukkan 9. Hér er hægt að skrá sig í hana.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm