Björn Ingi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Þannig mjakast þetta, en risaskrefin felast í betri heilsu og heilbrigðara gildismati. Manni líður miklu betur! Mæli með þessu fyrir alla sem vilja vera meira til staðar fyrir það sem mestu máli skiptir og ná stjórn á eigin lífi,“ segir Björn Ingi í færslu sinni en stuðningskveðjunum hefur rignt yfir hann síðan hann birti færsluna í morgun.
„Það er aldrei of seint að horfast í augu við sjálfan sig og besta ákvörðun sem hægt er að taka. Með Guðs hjálp og góðra manna. Einn dag í einu.“