Krabbameinið sem Karl Bretakonungur glímir við er ólæknandi samkvæmt heimildarmanni innan konungsfjölskyldunnar. Breskir miðlar greina frá en konungurinn, sem er 76 ára gamall, greindist með sjúkdóminn í febrúar í fyrra og hefur síðan gengist undir læknismeðferð hjá færustu sérfræðingum. Krabbameinið fannst snemma og er nú talið vera undir stjórn, þó það verði ekki læknað að fullu.
Í samtali við fjölmiðla lýsir Camilla Tominey, sérfræðingur í málefnum konungsfjölskyldunnar, að heilsa Karls sé stöðug. Hann muni líklega „deyja með krabbamein, en ekki af því,“ eins og hún orðar það.
Þrátt fyrir veikindin heldur Karl áfram að sinna skyldum sínum eftir megni, og eru nú þegar farið að leggja drög að 80 ára afmælishátíð hans árið 2028 þó óvíst sé hvort kongurinn muni sjá þann dag. Til marks um óvissuna hefur Karl ákveðið að búa áfram í Clarence House í stað þess að flytja í Buckingham-höll eins og flestir töldu að yrði heimili hans sem konungur.