Matur

Graflaxinn búinn – Hvað á að gera við sósuna?

Mynd
Graflax er vinsæll um jól og áramót.

Íslendingar borða mikinn graflax um hátíðirnar. Yfirleitt á ristuðu brauði með sérstakri graflaxsósu. En þó að margir setji vel af sósunni á fiskinn þá klárast hún sjaldnast á undan honum.

Þá kemur upp spurningin: Hvað á að gera við graflaxsósuna þegar graflaxinn er búinn?

Á tímum þar sem umræða um matarsóun, hækkandi verðlag og umhverfisvernd er í algleymi þá hlýtur að vera hægt að gera eitthvað við graflaxsósuna annað en að henda henni í ruslið. En sósan er að mestu samsett úr sinnepi, vatni, repjuolíu, hveiti, eggjarauðum, kryddum, ediki og sitthvoru fleiru.

Um þetta hafa skapast miklar umræður á Facebook-síðunni Matartips og gefa netverjar ýmis góð ráð um hvað skal gera við sósuna. Meðal annars að borða hana...:

- Með grilluðum laxi

-  Með síld

- Með reyktri bleikju

- Með öðrum fiski

- Á ristað brauð

- Á ristað brauð með osti

- Með harðsoðnum eggjum

- Með reyktum lunda

- Með rúllupylsu

- Á pylsu

- Með sviðasultu

- Dýfa laufabrauði í hana (tvær flugur í einu höggi þar)

- Út í heita brúna sósu

.......síðan er líka nefnt að þetta sé líka góð ástæða til þess að kaupa meiri graflax.