Ticker Matur

Matur

Er þetta sumarkokteillinn í ár? - Svona býrðu til „Spaghett“

Mynd

Gleymdu Aperol Spritz! Sumarkokteillinn í ár kallast Spaghett og það er sáraeinfalt að blanda hann.

Kokteillinn kemur frá barnum Wet City Brewery í Baltimore, en það er barþjónninn Reed Cahill sem á heiðurinn af drykknum. Einn eigenda barsins sagði í viðtali við fjölmiðla að kokteillinn hefði fengið nafn sitt, Spaghett, því hér væri um að ræða uppfærslu á vinsæla ítalska kokteilnum, Aperol Spritz. Nafnið hljómar eins og spagettí ef þú segir það nógu hratt og innblásturinn kom frá persónu úr grínþáttunum Tim and Eric Awesome Show en þar má finna persónu sem er alveg heltekin af ást sinni á pastasósu.

Undirstaða drykkjarins er Miller High Life, en flestir léttir flöskubjórar ættu að virka líka enda Miller High Life ekki seldur á Íslandi. Síðan þarf Aperol og smá sítrónusafa.

Til að blanda drykkinn þarf að opna bjórflöskuna og fá sér 1-2 sopa til að búa til pláss. Síðan hellir maður einu skoti (30 ml) af Aperol í flöskuna og svo smá sítrónusafa. Best er að kreista safann beint úr sítrónunni en það er líka alveg hægt að nota sítrónusafa úr belg. Síðan tekur maður flöskuna og sveiflar henni mjúklega í hringi til að blanda þessu öllu saman. Líklega virkar alveg jafn vel að hræra með sogröri ef slíku er fyrir að fara.

Svo er bara að njóta!

Sumir sælkerar skipta Aperolinu út fyrir annars konar líkjör eins og t.d. campari eða amaro montenegro.