Ticker Matur

Matur

Nýr veitingastaður opnar hjá Jarðböðunum við Mývatn

Mynd
Hjónin Tom og Caity á Earth Lagoon Bistro.

Nýr veitingastaður, Earth Lagoon Bistro, opnaði í vikunni við Jarðböðin á Mývatni. Þar geta gestir notið matar og drykkjar með útsýni yfir lónið og Mývatnssveit.

Bistroið verður mikilvægur hluti af nýrri heildarupplifun staðarins. Þar verður lögð áhersla á ferskt hráefni, létta og vandaða rétti og afslappað andrúmsloft sem hentar bæði lónsgestum, ferðalöngum á leið um Norðurland og þeim sem vilja koma sérstaklega við í mat eða drykk.

Matseðillinn er unninn af Tom Pops, yfirkokki Earth Lagoon Mývatn, og Caity McNally, eiginkonu hans, sem einnig starfar með Jarðbaðateyminu. Þau koma með fjölbreytta reynslu og alþjóðlegan bakgrunn, hann er frá Póllandi og hún frá Skotlandi. Hjónin hafa sett saman spennandi matseðil sem sameinar íslenskt hráefni og áhrif frá Asíu, Mið-Austurlöndum og fleiri matarhefðum.

„Við erum mjög spennt að kynna fyrir fólki matseðilinn sem er í senn jarðbundinn og nýstárlegur. Hann er frábrugðinn hefðbundnum ferðamannamatseðli því hér er um að ræða ferskari nálgun þar sem hráefni úr nærumhverfinu er sett í nýjan búning og ferðast aðeins lengra í bragði og framsetningu. Grunnurinn er auðvitað fiskur, lamb, grænmeti, kryddjurtir, mjólkurvörur og annað íslenskt gæðahráefni, en með alþjóðlegum blæ sem gerir seðilinn fjölbreyttan og áhugaverðan,“ segir Tom, yfirkokkur.

Hann segir að matseðillinn við opnun Earth Lagoon Bistro sé aðeins byrjunin. Eftir því sem veitingastaðurinn þróast geta gestir átt von á nýjum árstíðabundnum réttum sem byggja á besta staðbundna hráefni sem völ er á hverju sinni.

Rökrétt framhald af upplifun í lóninu 

„Við sjáum bistróið sem rökrétt framhald af upplifuninni í lóninu. Eftir böðun í heitu, steinefnaríku vatninu vill fólk geta sest niður, fengið eitthvað ferskt og gott og notið útsýnisins. Þetta á að vera einfalt, afslappað og vandað,“ segir Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn.

Earth Lagoon Bistro mun einnig bjóða upp á fljótlega valkosti fyrir gesti sem hafa skemmri tíma, svo sem súpur, samlokur, salöt, kaffidrykki og léttari veitingar. Þannig getur staðurinn þjónað bæði þeim sem vilja dvelja lengi og njóta, og þeim sem eru til dæmis í dagsferð um Norðurland.

Áhersla er lögð á að veitingastaðurinn endurspegli sömu gildi og lónið sjálft; tengingu við náttúruna, rólegt umhverfi, vandaða þjónustu og upplifun sem er bæði hlýleg og íslensk.

„Maturinn er stór þáttur í því hvernig fólk man staði sem það heimsækir. Við viljum að gestir fari héðan með ríka tilfinningu fyrir Mývatni, ekki bara í gegnum vatnið og útsýnið, heldur líka í gegnum bragðið,“ segir Guðmundur og bætir við að með opnun Earth Lagoon Bistro verði Jarðböðin við Mývatn enn eftirsóknarverðari áfangastaður fyrir gesti sem vilja sameina jarðböð, slökun, náttúru og góða matarupplifun á einum stað.