Ticker Matur

Matur

Landsliðskokkur gefur út matreiðslubók

Mynd
Ísak Aron landsliðskokkur.

Matreiðslubókin Bragð eftir okkar ástsæla og einn fremsta matreiðslumeistara Íslands, Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliða íslenska kokkalandsliðsins og Kokk ársins 2026, er komin út. Bragð er ferðalag um íslenska matargerð þar sem framúrskarandi hráefni fá að njóta sín til fulls.

Þrátt fyrir ungan aldur er Ísak Aron hokinn af reynslu þegar kemur að matargerð enda hefur hann unnið til verðlauna í faginu, meðal annars vann hann bronsið með íslenska kokkalandsliðiðnu á Ólympíuleikunum í matreiðslu árið 2024 svo fátt sé nefnt. Hann hefur heillað ófáa matgæðinga upp úr skónum.  

Mynd

Matreiðslubókinni er ritstýrt af Sjöfn Þórðardóttur.

Ísak Aron er á leið til Luxemborgar með íslenska kokkalandsliðinu þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í matreiðslu og ætlar sér stóra hluti þar. Í bókinni er íslenskt hráefni í forgrunni og reynsla Ísaks frá Suðureyri, þar sem amma hans var fyrsti kennarinn hans, úr Michelin-eldhúsum og úr keppnismatreiðslu á hæsta stigi fléttast saman á einstakan hátt. Í dag starfar Ísak Aron hjá Múlakaffi með glæsilegu teymi stjörnukokka sem töfra fram glæsilegar matarupplifanir fyrir fjölbreytta hópa sælkera þar sem metnaðurinn er ávallt í hávegum hafður.

Ísak Aron fékk öflugt  teymi til að vinna með sér við gerð þessarar bókar en Sjöfn Þórðardóttir er ritstjóri og stílisti bókarinnar, Hallur Karlsson ljósmyndari sá um myndatökurnar og David Young, hannaði útlit bókarinnar. Þetta er bók sem allir alvöru matgæðingar og ástríðukokkar þurfa að eignast.