Nýtt bragð af Collab hefur verið kynnt til leiks í samstarfi við íslenska útivistamerkið 66°Norður sem fagnar 100 árum í ár.
„Það var virkilega gaman að vinna með 66°Norður að þessu verkefni. Teymið þeirra lagði mikinn metnað í að þróa bragð sem vekur upp minningar um íslenskt sumar og skapaði einstakan heim í kringum dósina. Útkoman er drykkur sem fangar bragðið af íslensku sumri og passar fullkomlega með ferðalögum um landið, útivist og útilegum óháð því hvernig veðrið lætur,“ segir Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni.
Skírskotun drykksins er íslenska sumarið og nostalgían sem því fylgir. Bragðið er eitthvað sem landsmenn geta tengt við uppskeru seinni parts sumars en í drykknum má nefnilega finna keim af rabarbara, rifsberjum og sólberjum. Það má því segja að hér sé íslenskt sumar aðgengilegt í dós, algjörlega óháð veðri.
„Okkur langaði að tengja við íslenska sumarið og nostalgíuna sem því fylgir og við unnum strax út frá því að brögðin þyrfti að vera hægt að finna í íslenskum garði, en bragðið endaði einmitt á að vera rabarbari, rifsber og sólber,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66 Norður. „Tengingin við sjóinn er líka skemmtileg, en fyrir akkúrat 100 árum var 66°Norður stofnað í kringum framleiðslu sjófatnaðar, sem við framleiðum enn í dag, og Collab nýtir síðan auðvitað kollagen úr fiski í drykkinn."
Drykkurinn kemur í takmörkuðu upplagi og á hárréttum tíma fyrir ferðalög um landið, útilegur og útivist næstu vikna í aðdraganda verslunarmannahelgar.