Þessi einfalda og ljúffenga uppskrift að grillosti með pestó og klettasalati kemur úr smiðju matgæðingsins Berglindar Hreiðarsdóttur hjá gotteri.is.
- 2 x Grillostur frá MS gott í matinn
- Klettasalatspoki
- Grænt, ferskt pestó
- Furuhnetur (ein lúka)
- Salt og pipar eftir smekk
- Skerið ostinn niður í lengjur og grillið við háan hita í nokkrar mínútur. Snúið ostinum reglulega á grillinu þar til grillrákir byrja að myndast og osturinn að linast upp.
- Setjið síðan vel af pestó yfir ostinn ásamt furuhnetum og saltið og piprið eftir smekk.
- Njótið strax á meðan osturinn er heitur.