„Við Íslendingar elskum auðvitað að nýta hvert tilefni til þess að henda í gott partý og öll góð partý þurfa gott partýsnarl,“ segir Krista Hall, markaðsstjóri Eldum rétt.
Í tilefni af Heimsmeistaramótinu í fótbolta býður Eldum rétt nú í fyrsta sinn upp á sérlagaða partýpakka sem eru að hennar sögn fullkomnir til að deila yfir spennandi leik. „Um leið og maður lumar á skemmtilegum partýmat er komið tilefni til að hóa saman fjölskyldunni eða vinunum og gera góðan leik enn betri. Við finnum það líka á viðtökunum að svona tilefnispakkar eru komnir til að vera hjá okkur,“ segir Krista.
Á meðan á Heimsmeistaramótinu stendur róterast HM pakkarnir en það eru alltaf þrír réttir í boði hverju sinni í skömmtum fyrir fjóra fullorðna að sögn Kristu. Má þar nefna kóreska kjúklingavængi, ofurnachos og franskanauta dip sliders.
„Þessir síðastnefndu eru í algjöru uppáhaldi á mínu heimili, enda einstaklega djúsí. Eldum rétt vængirnir, eiginlega sama hvaða vængir það eru, eru líka þeir allra bestu sem ég hef smakkað og lítið mál að græja þá þegar maður fær allt hráefnið í réttum skömmtum.“
Krista viðurkennir að vera fyrst og fremst stemningskona sem geri það að verkum að hún sýni HM mikinn áhuga en á þó glæstan fótboltaferil að baki í Fjölni. „Ég vill náttúrlega meina að mitt stærsta afrek í lífinu fyrir utan fæðingu dætra minna hafi verið þegar ég varð Pæjumótsmeistari B-liða á Pæjumótinu í fótbolta árið 1995. Þá var ég mikill stuðningsmaður Manchester United og Ryan Giggs var minn maður,“ segir Krista en hún dóttir Sigga Hall matreiðslumeistara.
Hún á sér uppáhaldslið á HM í Bandaríkjunum. „Sko ég var að spá í að halda með Noregi af því að pabbi minn tók upp á því í vetur að senda mér nánast daglega og mjög óumbeðið einhver instagram reels með afrekum Haaland sem hann heldur mikið upp á. Ósjálfrátt var ég þar með orðin mjög fróð um hann og hans afrek. Svo er ég greinilega ekkert rosalega trygg stuðningskona því mér áskotnaðist svo einstaklega flottur Argentínubolur á dögunum sem ég er spennt að klæðast svo núna held ég með Argentínu. Nema náttúrulega að einhver gefi mér flottari bol, þá er ég alveg opin fyrir því að skipta um stuðningslið.“