Ticker Matur

Matur

Morgunmatur að hætti Röggu nagla

Mynd
Ragga Nagli. Mynd/Facebook

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Nýlega gaf Ragga góð ráð hvað morgunmatinn varðar, hugmyndir að vel samsettum morgunmat og uppskrift af eplakökugraut.

„Ef þú ert eins og Naglinn og vaknar eins og vannærður kettlingur í húsasundi þá er morgunverðurinn þín uppáhalds máltíð. Naglinn er nefnilega al­gjör morg­un­matsperri og hefur borðað haframjöl í ein­hverri út­gáfu á hverj­um ein­asta morgni í 25 ár.

Bakaðir graut­ar, næt­urgraut­ar, eldaðir graut­ar, haframjölsskons­ur, ­múff­ur og graut­artriffli.

Haframjöl er nefni­lega eins og auður strigi mál­ar­ans og má breyta í hvaða góm­sæti sem er.

En morgunmatur þarf alls ekki að vera haframjöl. Það getur verið hvaða kolvetnagjafi sem er í staðinn. Það má líka skipta út haframjöli fyrir alls konar annað mjöl eins og bókhveitiflögur, hirsimjöl, hrísmjöl, rúgmjöl, byggflögur.“ 

Ragga segir lykilatriðið vera að máltíðirnar séu vel samsettar af öllum orkuefnunum: prótíni, kolvetnum og fitu til að fá örugglega öll næringarefnin og tryggja úrvals mettun langt fram að hádegi.

„Það setur tóninn fyrir daginn og minnkar líkur á að tæta upp Kúlusúkkið kl tíu á kvöldin af einskæru hungri. Að sama skapi má mataræðið ekki vera jafn óspennandi og opnar umræður um aukningu þorskkvóta.

Fjölbreytni, gúrmeti og skemmtilegheit eiga að vera vasaljósið og áttavitinn.

Hollt og gómsætt mataræði sem fær skrokkinn til að blómstra og sálina til að hlæja.

Mat­ur sem skorar samtímis hátt í kúlínarískri fullnægingu og sprengir hollustuskalann.

Því ef þú ert ekki að urlast úr til­hlökk­un fyr­ir heilsu­sam­leg­um máltíðum þá muntu ekki end­ast nema nanó­sek­úndu sem heilsu­mel­ur.

Hér kemur skapalón fyrir vel samsetta morgunmáltíð með hugmyndir úr öllum orkuefnum þar sem hver getur fundið sitt til að púsla saman máltíð sem myndi kitla pinnann.

Og auðvitað syndsamlega gómsæt uppskrift að eplakökugraut Naglans.“