fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Katrín eignaðist fyrsta barnið sitt 16 ára – Hélt ótrauð áfram og er í dag aðjúnkt við Háskóla Íslands

Fókus
Þriðjudaginn 7. maí 2024 09:29

Katrín Lilja Sigurðardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Alkastinu:

Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastinu sem er í boði Þvottahússins er engin annar en meistarinn Katrín Lilja Sigurðardóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafninu Sprengju Kata starfar dags daglega sem aðjúnkt í efnafræði við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í allskonar íþróttum eins og hlaupi, hjólreiðum og sundi.

Katrín eignaðist sitt fyrsta barn aðeins sextán ára gömul sem þýddi að hún var í raun þremur árum á eftir í sinni mennta- og háskólagöngu. Engu að síður hélt hún ótrauð áfram þrátt fyrir að á námsárunum í HÍ hafi hún eignast tvö börn til viðbótar. Snemma á sínum háskólaárum snerist hún til kennslu; fyrst sem stundakennari og nú, tíu árum síðar er hún enn að. Nú sem kennari í almennri-, lífrænni- og ólífrænni efnafræði.

Hún segir að tímarnir hafa breyst mikið og nefnir í því samhengi þrjá þætti sem hún vill meina að hafi haft mikil neikvæð áhrif á þá nemendur sem hún kennir. Samfélagsmiðlar, með allri þeirri athyglisskerðingu sem þeim fylgir, stytting menntaskóla úr fjórum árum niður í þrjú og svo nefnir hún áhrif Covid, það er þá kynslóð nemenda sem þurftu að stunda fjarnám meðan að samkomutakmarkanir voru í gangi.

Hún fór í viðtalinu yfir tímann þegar hún var í forsvari fyrir sprengjugengið í HÍ. Það var hópur nemenda sem hélt allskonar sýningar út um allt land með sprengifimar efnablöndur og þaðan spratt nafnið sem hún er þekkt fyrir í dag, Sprengju Kata.

 

Gunnar fór aðeins inn á andlegri og yfirnáttúrulegri brautir þegar hann leitaðist eftir að vita hvort hún hefði eitthvað að segja um frumefnið mc1.15 sem bandarískum og rússneskum vísindamönnum í sameiningu að skapa á rannsóknarstofu árið 2003. Mikill leyndardómur hafði hvíld yfir þessu efni, því uppljóstrarinn Bob Lazar, sem kom fram í viðtali árið 1989 við rannsóknarfréttamanninn George Knapp undir dulnefninu “Dennis”, hélt því fram að hann hafði unnið sem vélaverkfræðingur á svæði S4 (section 4) á svæði 51 (Area 51) sem þekkt er fyrir mikla leynd tengda UFO eða UAP eins og fyrirbærið er þekkt sem í dag. Að sögn Bob starfaði hann þar í um hálft ár við tilraunir og skoðanir á búnaði sem virtist vera aflgjafi flygilda sem hann vill meina að hafi náðst sem og fundist við fornleifauppgröft. Allt í allt segir að hann að á þessum tíma hafi förin verið níu samtals. Bob vildi meina að ójarðneskt efni sem hann kallaði Element 1.15 væri efnið sem gerði það að verkum að flygildin gætu ferðast eins og þau virtust gera. Hann vildi meina að þetta efni sem í dag er þekkt sem Moscovium fæli í sér eiginleika sem brjóta í bága við allar þær hugmyndir um hvað nútíma vísindi telji að sé mögulegt.

Kata sagði þetta vera í hennar huga algjört bull því ef grunnefni sem hægt sé að skapa í rannsóknarstofu og geti ekki haldist stöðugt nema í nokkrar sekúndur beri enga þekkta eiginleika. Henni fannst sagan samt sem áður áhugaverð og vildi ólm fá að vita meira um þetta mál og því ætlaði Gunnar að senda henni link á heimildarmyndina Bob Lazar: Area 51 and flying saucers þar sem Bob fer yfir þessa sögu sína sem haldist hefur óbreytt í 35 ár.

Íþróttaferill Kötu spannar mörg ár og jafnmörg kíló. Hún sagðist hafa upplifað miklar þyngdarbreytingar í tengslum við barneignir þar sem “metið” hennar var 109 kg. Hún hefur alltaf notið þess að hreyfa sig þannig að jafnvel þótt sá grunur hafi læðst að henni að hún myndi aldrei komast í gott form aftur, runnu kílóin af henni. Í léttu gríni segist Kata vera einn helsti stuðningsmaður hlaupakeppna á Íslandi; hún skráir sig í næstum allt og sér svo bara til hvort hún mætti. Hún nefnir í þessu samhengi reynslu sína af Hengill Ultra 2021 þegar vont veður og mjög erfiðar aðstæður urðu þess næstum valdandi að hún yrði úti. Uppgefin á bæði líkaman og sál ákvað hún í kjölfarið að halda áfram, þó með það í huga að leyfa sér að sleppa þeim keppnum þegar aðstæður biðu ekki upp á það að njóta aðstæðna án þess að óttast um líf sitt. Á meðan viljinn til þess að hafa gaman, vera úti og gera betur er til staðar ætlar Kata að halda áfram.

Viðtalið við Sprengju Kötu má nálgast í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan eða leita það uppi á öllum helstu hljóðvarpsveitum samtímans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Enginn mórall hjá Skítamóral og tónleikum ekki aflýst

Enginn mórall hjá Skítamóral og tónleikum ekki aflýst
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir „heilbrigða og fullkomna“ einstaklinga fyrir að misnota Ozempic

Gagnrýnir „heilbrigða og fullkomna“ einstaklinga fyrir að misnota Ozempic
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Þetta er mögulega ósmekklegasta og ógeðslegasta hugmynd þessa forsetaframboðs“

„Þetta er mögulega ósmekklegasta og ógeðslegasta hugmynd þessa forsetaframboðs“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyllti á framboðsfataskápinn á grænum markaði

Fyllti á framboðsfataskápinn á grænum markaði
Fókus
Fyrir 4 dögum

Keppendur reiðir og í áfalli eftir allt Júró-dramað – „Ég gerði mitt besta í þessum aðstæðum“

Keppendur reiðir og í áfalli eftir allt Júró-dramað – „Ég gerði mitt besta í þessum aðstæðum“