fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Viðbrögð pabba hennar við djörfu tískusýningunni komu öllum á óvart

Fókus
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2018 var tilraunaverkefnið Black Tape Project sett á laggirnar. Síðan þá hefur það komið fram árlega á tískupöllunum og nú síðast á tískuvikunni í New York fyrr í febrúar.

Fyrirsæturnar sem ganga fyrir Black Tape Project eru, eins og nafnið gefur til kynna, með teip fyrir sínu allra heilagasta og svo er teipið klippt og skorið í alls konar mynstur um líkama þeirra.

Verkefnið er djarft og vekur alltaf athygli.

Fyrirsætan Savannah Suarez var ein þeirra sem gekk fyrir Black Tape Project og þakkar föður sínum fyrir að hafa hvatt sig áfram.

Hún segir í samtali við The Sun að það hafi verið pabbi hennar sem stakk upp á því að hún myndi ganga í umræddri sýningu.

Savannah Suarez.

„Pabbi hafði lesið eina af fréttunum um Black Tape Project í sundfatavikunni í Miami fyrir nokkrum árum. Hann sendi mér greinina og sagði: „Ef þú myndir fá þetta tækifæri, myndir þú grípa það?“

Savannah segir að fyrst hafi hún verið efins, þar sem klæðnaðurinn – ef svo má kalla – er einstaklega djarfur.

The Black Tape Project designer Joe Alvarez. Picture: BACKGRID Australia
Joe Alvarez er maðurinn á bak við Black Tape Project.

En hún segir að foreldrar hennar hafi hjálpað henni að skipta um skoðun.

„Ég pældi aðeins í þessu og talaði við foreldra mína, sem styðja mig í einu og öllu, og fattaði: Ég er að sýna jafn mikið hold og ég myndi gera ef ég væri í bikiníi. Eini munurinn er að þetta er teip.“

Það eru ekki bara foreldrar hennar sem eru stuðningsríkir heldur einnig amma hennar og afi.

Pabbi hennar kom að horfa á fyrstu sýninguna og mamma hennar þá næstu.

„Ég veit að þetta er ekki algengt. Alltaf þegar ég segi einhverjum að pabbi kom á sýninguna er fólk mjög hissa. En ég myndi ekki vilja hafa þetta öðruvísi. Ég er mjög þakklát.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu